Nýjum sumarhúsum Orlofssjóðs vel tekið

Orlofssjóður KÍ hefur í sumar aukið framboð á orlofshúsum fyrir félagsmenn. Ný hús hafa verið tekin í notkun, eða verða senn, á Siglufirði, Ísafirði, í Borgarfirði og Vestmannaeyjum.
Aðsókn í ný hús Orlofssjóðs hefur verið góð í sumar og gildir það sama um önnur sumarhús sjóðsins, svo sem á Flúðum og í Kjarnaskógi, en þau hafa verið fullsetin á sumarmánuðum.
Meðal nýjunga hjá Orlofssjóði er átta íbúða raðhús á Bifröst í Borgarfirði. Sex íbúðanna hafa verið í leigu síðustu vikur og ráðgert er að tvær hinar síðustu verði tilbúnar með haustinu. Þegar er ein gæludýraíbúð í boði á Bifröst og mun önnur bætast við haust.
Nágrenni Bifrastar er kjörið til útiveru, fjöldi merktra gönguleiða og margt að skoða í fallegu umhverfi Borgarfjarðar.
Styttist í Eyjar
Í Vestmannaeyjum er nú unnið að frágangi tveggja 2ja herbergja íbúða við Strandveg. Íbúðirnar eru á svokölluðum Ísfélagsreit, stutt er í þjónustu og afþreyingu auk þess sem hægt er ganga beint úr Herjólfi.
Ráðgert er að íbúðirnar tvær verði tilbúnar til leigu fyrir félagsmenn KÍ síðar í þessum mánuði.
Gagginn og íbúð í raðhúsi
Þá hefur Orlofssjóður fest kaup á og sett í útleigu þriggja herbergja íbúð á Siglufirði. Íbúðin er við Hlíðarveg, nánar tiltekið í Gagganum sem áður hýsti grunnskóla Siglufjarðar.
Þá er vert að geta þess að bætt hefur verið við orlofskosti á Ísafirði. Til langs tíma hefur verið í boði að leigja hús við Skógarbraut en nú hefur verið bætt við tveggja herbergja íbúð í raðhúsi við Tungubraut.
Siglufjörður og Ísafjörður eru vinsælir vetraríþróttastaðir en auk þess skemmtilegir heim að sækja árið um kring.
Það er von Orlofssjóðs að félagsmenn fagni þessum viðbótum sem auka fjölbreytni og koma vonandi vel til móts við þarfir félagsmanna KÍ um land allt. Félagsmenn KÍ eru hvattir til kynna sér allt sem er í boði hjá Orlofssjóði.
Tenglar
Orlofsvefurinn – hægt að skoða sig um og bóka eignir
Orlofssjóður – upplýsingar um sjóðinn