Nýjar tölur um kosningaþátttöku

Alls hafa um 60% félaga í SÍ og FSL greitt atkvæði um nýjan kjarasamning. Tæplega 49% félaga í FL hafa kosið.
Alls höfðu um 60 prósent félagsmanna í Skólastjórafélagi Íslands (SÍ) annars vegar og Félagi stjórnenda leikskóla (FSL) hins vegar greitt atkvæði um nýjan kjarasamning klukkan fjögur í dag. Ívið færri félagsmenn Félags leikskólakennara (FL) höfðu á sama tíma greitt atkvæði eða tæp 49 prósent.
Atkvæðagreiðslan hófst á þriðjudag og lýkur klukkan 11 á morgun, föstudaginn 7. ágúst.
Tölur um þátttöku voru svohljóðandi klukkan 16:00 í dag:
- Félag leikskólakennara 48,69%
- Félag stjórnenda leikskóla 59,76%
- Skólastjórafélag Íslands 60,52%
Félögin þrjú; FL, FSL og SÍ skrifuðu undir kjarasamninga við Samband íslenskra sveitarfélaga 10. júlí síðastliðinn.
Tilkynnt verður um niðurstöðu atkvæðagreiðslu félaganna þriggja um hádegisbil á morgun.