Nýjar reglur um skólastarf á nýju ári
Fréttir|22. desember 2020

Ný reglugerð um skólastarf tekur gildi á nýársdag og á að gilda til 28. febrúar 2021. Reglugerðin er birt á vef stjórnarráðsins og tekur mið af minnisblaði sóttvarnalæknis.
Tillögurnar eru þó settar fram með fyrirvara um að ástand faraldursins verði ekki verra þegar nýtt ár gengur í garð. Samkvæmt nýju litakerfi er gert ráð fyrir að skólastarf hefjist á appelsínugulum.
Ein stærsta breytingin varðar skólastarf í framhaldsskólum en gert er ráð fyrir að staðnám hefjist á nýju ári.
Á vef stjórnarráðsins eru dregin fram helstu atriði í nýjum reglum. Þær eru eftirfarandi:
Helstu reglur í leikskólum:
- Reglur um hámarksfjölda gilda ekki um börn í leikskólastarfi. Hámarksfjöldi fullorðinna í rými er 20 einstaklingar.
- Tveggja metra lágmarksfjarlægð og grímuskylda gildir einungis fyrir fullorðna sem ekki geta uppfyllt nálægðarmörk.
- Blöndun er leyfð milli hólfa.
- Foreldrar, aðstandendur og aðrir utanaðkomandi skulu ekki koma inn í skólabyggingu nema brýna nauðsyn beri til og þá með andlitsgrímu.
- Sömu reglur gilda um tónlistarskólanám nemenda á leikskólaaldri.
Helstu reglur í grunnskólum: - Hámarksfjöldi nemenda í hverju rými er 50, á öllum aldursstigum grunnskóla.
- Fjöldatakmörk fyrir fullorðna í hólfi er 20 manns og nálægðarmörk fullorðinna tveir metrar. Þar sem ekki er hægt að viðhafa nálægðarmörk eða fjöldatakmörk er grímuskylda fyrir fullorðna.
- Grunnskólanemendur eru undanþegnir nálægðarmörkum og grímuskyldu.
- Blöndun milli hópa barna innan skóla er leyfð í sundi og íþróttum. Skipulagt
- íþróttastarf grunnskólabarna er heimilt með eða án snertingar.
- Starf félagsmiðstöðva fellur undir viðmið um íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf.
- Sömu reglur gilda um tónlistarskólanám nemenda á grunnskóla aldri.
Helstu reglur á framhaldsskólastigi: - Viðmiðunarfjöldi nemenda og starfsmanna í hverju rými er 30.
- Sé ekki unnt að halda 2 metra fjarlægð skulu nemendur og starfsmenn nota andlitsgrímur.
- Blöndun nemenda milli hópa er heimil í kennslu.
- Sóttvarnaráðstafanir varða framhaldsskóla, lýðskóla, framhaldsfræðslu en einnig ungmennahús sem sinna nemendum á framhaldsskólastigi.
- Sömu reglur gilda um tónlistarskólanám nemenda sem lokið hafa grunnskóla.
Helstu reglur á háskólastigi - Hámarksfjöldi í hverju rými verði 50 manns og 2 metra nálægðarregla í gildi. Skylt verður að nota grímu ef ekki er hægt að viðhafa tveggja metra nálægðarmörk eða ef loftræsting er ekki góð.
Sjá nánar í reglugerð heilbrigðisráðherra.