Nýjar reglur endurmenntunarsjóða

Fréttir|2. ágúst 2022

Breytingar á regluverki endurmenntunarsjóða Kennarasambandsins tóku gildi í gær, 1. ágúst.

Meðal helstu breytinga er að fjárhæð nokkurra styrkja hefur hækkað og þá hefur tímabili úthlutunar á styrkjum til andlegrar og eða líkamlegrar sjálfseflingar verið breytt. 

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér hið nýja regluverk. Þetta á við félagsmenn í Félagi leikskólakennara, Félagi grunnskólakennara, Félagi stjórnenda leikskóla, Skólastjórafélagi Íslands og Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum.

Hér að neðan eru helstu breytingar tíundaðar.

Félag grunnskólakennara (FG) og Skólastjórafélag Íslands (SÍ)

Vonasjóður er starfsþróunarsjóður FG og SÍ. Þar verða gerðar eftirtaldar breytingar.

A hluti
Starfsmenntunarstyrkur verður hækkaður úr 300.000 krónum í 350.000 krónur. Styrkurinn verður eftir sem áður veittur á tveggja ára tímabili.

B hluti
Styrkhæfum ECTS einingum verður fjölgað úr 120 í 180 einingar. Upphæð fyrir hverja einingu verður óbreytt.

C hluti
Hér eru veittir styrkir til andlegrar og eða líkamlegrar sjálfseflingar. Hámarksstyrkur er 60 þúsund krónur en sú breyting verður gerð að eftirleiðis verður miðað við 1. ágúst hvert ár, ekki 12 mánaða tímabil. Þannig endurnýjast styrkurinn 1. ágúst á hverju ári. Eftirstöðvar, ef einhverjar eru falla niður og nýr styrkur myndast.

Lesa meira um Vonarsjóð

_ _ _

Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT)

Nokkrir styrkir verða hækkaðir í Starfsmenntunarsjóði FT og auk þess sem gerð verður veigamikil breyting á E deild sjóðsins.

A deild
Styrkur verður hækkaður úr 450.000 krónum í 550.000 krónur. Eftir sem áður verður úthlutað á þriggja ára tímabili. Styrkir A deildar eru einstaklingsstyrkir vegna starfsþróunar innanlands sem utan.

B deild
Hér eru veittir þróunarstyrkir og hækkar hámarksstyrkur úr 1.000.000 í 1.250.000 krónur.

C deild
Styrkir C deildar eru vegna skipulegra hópferða; svo sem náms- og kynnisferða. Hámarksstyrkur í þessum flokki hækkar úr 150.000 í 175.000 krónur. Styrkur er veittur á tveggja ára tímabili.

D deild
Úr D deild eru veittir styrkir vegna háskólanáms sem nýtist í starfi. Hér verður sú breyting að ekki verður lengur miðað við 120 ECTS einingar heldur 180 ECTS einingar.

E deild
Hér eru veittir styrkir til andlegrar og eða líkamlegrar sjálfseflingar. Hámarksstyrkur er 60.000 krónur en sú breyting verður gerð að eftirleiðis verður miðað við 1. ágúst hvert ár, ekki 12 mánaða tímabil. Þannig endurnýjast styrkurinn 1. ágúst á hverju ári. Eftirstöðvar, ef einhverjar eru falla niður og nýr styrkur myndast.

Lesa meira um Starfsmenntunarsjóð FT

_ _ _

Félag leikskólakennara (FL) og Félag stjórnenda leikskóla (FSL)

B deild
Sú breyting verður gerð á úthlutunarreglum B deildar Vísindasjóðs FL/FSL að styrkhæfum ECTS einingum verður fjölgað úr 120 í 180 einingar. Upphæð fyrir hverja einingu helst óbreytt frá því sem var.

E deild
Hér eru veittir styrkir til andlegrar og eða líkamlegrar sjálfseflingar. Hámarksstyrkur er 60.000 krónur en sú breyting verður gerð að eftirleiðis verður miðað við 1. ágúst hvert ár, ekki 12 mánaða tímabil. Þannig endurnýjast styrkurinn 1. ágúst á hverju ári. Eftirstöðvar, ef einhverjar eru falla niður og nýr styrkur myndast.

Þá verður grein 3.24 í úthlutunarreglum felld út en hún varðar styrki sem hafa verið veittir fyrir einingabært nám sem stundað hefur verið erlendis. 

Lesa meira um Vísindasjóð FL/FSL

 

Ef spurningar vakna er hægt að senda fyrirspurn á sjodir@ki.is