Nýjar launareiknivélar auðveldar í notkun

Fréttir|19. ágúst 2021

Kennarasambandið hefur sett nýjar launareiknivélar í loftið sem virka í snjalltækjum og eru notendavænni en gömlu excel-reiknivélarnar.

Við gerð nýju vélanna er notast við hugbúnað frá GRID en eftir sem áður eru excel-skjöl grundvöllurinn. GRID er sprotafyrirtæki sem Hjálmar Gíslason stofnaði árið 2018.

Einn af kostum hinna nýju reiknivéla er að auðvelt er að nota þær í síma og spjaldtölvu – en það var ekki hægt í gamla kerfinu. Auk þess er mun auðveldara að bera saman launasetningu ólíkra starfsheita í nýju vélunum en í þeim gömlu. Það sama má segja um samanburð á launum út frá breytilegum forsendum um menntun og reynslu.

Nýju reiknivélarnar gefa upp samninsbundin dagvinnulaun félagsmanna í Félagi grunnskólakennara, Félagi leikskólakennara, Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, Félagi stjórnenda leikskóla og Skólastjórafélagi Íslands.

Ennfremur er hægt að skoða í nýju líkani hvernig kennarar í ólíkum ríkisreknum framhaldsskólum raðast til launa út frá menntun og starfsaldri samkvæmt stofnanasamningum viðkomandi skóla.

 

Skoða nýju reiknivélarnar