Nýjar áherslur hjá Sprotasjóði

Farsæld barna og ungmenna með áherslu á geðrækt, geðtengsl og geðheilbrigði eru á meðal áherslusviða Sprotasjóðs fyrir árið 2023.
Stjórn Sprotasjóðs hefur ákveðið áherslusvið sjóðsins fyrir næsta ár. Þau eru:
- Farsæld barna og ungmenna með áherslu á geðrækt, geðtengsl, geðheilbrigði
- Sköpun og hönnun
- Stafræn borgaravitund, upplýsinga- og miðlalæsi
Umsóknarfrestur er til klukkan þrjú, fimmtudaginn 16. febrúar 2023. Opnað verður fyrir umsóknir í byrjun árs.
Sjóðurinn tekur vel á móti öllum verkefnum sem að falla undir þessi áherslusvið. Einnig er hægt að senda inn umsóknir sem ekki falla undir þessi áherslusvið. Allar umsóknir eru metnar út frá matskvarða sjóðsins.
Um Sprotasjóð
Sprotasjóður er sameiginlegur sjóður fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Sjóðurinn styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og Aðalnámskrá.
Á hverju ári styrkir sjóðurinn tugi verkefna alls staðar af landinu sem stuðla að þróun og nýsköpun í skólastarfi. Sprotasjóður veitti í fyrra 56 milljónir króna til 36 verkefna.
Rannís sér um umsýslu Sprotasjóðs fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytisins.
Hér er hægt að lesa meira um Sprotasjóð.