Nýir styrkir úr starfsmenntasjóðum

Um er að ræða einstaklingsbundinn styrktarsjóð að upphæð 60.000 krónur á ári.
Nýjar deildir hafa verið stofnaðar í nokkrum endurmenntunarsjóðum KÍ en um er að ræða einstaklingsbundinn styrktarsjóð að upphæð 60.000 krónur á 12 mánaða tímabili og kemur til viðbótar öðrum styrkjum úr sjóðunum. Án efa verður þessi breyting félagsmönnum til hagsbóta enda hefur verið kallað eftir henni. Breytingin tekur gildi þann 1. ágúst 2021.
Sjóðirnir sem um ræðir eru Vonarsjóður FG/SÍ (c-hluti), Vísindasjóður FL/FSL (e-deild) og Starfsmenntunarsjóður FT (e-deild). Hægt verður að sækja um styrki vegna andlegrar og /eða líkamlegrar sjálfseflingar. Styrkurinn getur til dæmis verið vegna tómstunda- og líkamsræktarnámskeiða, sjálfsstyrkingarnámskeiða, áskrifta að starfstengdum vefsíðum eða efnisveitum, fagbóka og fagtímarita. Styrkurinn er einnig veittur vegna námskeiða sem sótt eru innanlands, þ.m.t. fjarnámskeið hvort sem þau eru haldin af innlendum og/eða erlendum námskeiðshaldara.
Greitt verður vegna viðburða/námskeiða sem haldin eru og greitt er fyrir eftir 1. ágúst 2021 en áætlað er að opnað verði fyrir umsóknir úr deildunum um miðjan ágúst. Sú dagsetning verður auglýst síðar.