Nýir kjarasamningar SÍ og FSL

Fréttir|18. ágúst 2023

Skólastjórafélag Íslands og Félag stjórnenda leikskóla skrifuðu í dag undir nýja kjarasamninga. Atkvæðagreiðsla er frá 28. ágúst til 1. september.

SÍ og FSL skrifuðu undir samninga við Samband íslenskra sveitarfélaga fyrr í dag með gildistíma frá 1. október 2023 og til og með 31. maí 2024.

Kjarasamningarnir verða kynntir félagsmönnum í næstu viku og í framhaldinu verður gengið til atkvæða um samninganna. 

Atkvæðagreiðsla um samningana hefst mánudaginn 28. ágúst klukkan 12 á hádegi og henni lýkur á hádegi föstudaginn 1. september.

Síðast undirrituðu félögin kjarasamninga við Samband íslenskra sveitarfélaga 26. ágúst 2022.