Nýir kennarar á öllum skólastigum veita hver öðrum stuðning

Fréttir|5. janúar 2026

Fyrsta starfsár Rökvís, félags nýliða í kennslu, hefur verið annasamt og árangursríkt. Stjórn hins nýja félags segir frá árinu og því sem koma skal.

Við hjá Rökvís – félagi nýliða í kennslu höfum nýtt okkar fyrsta starfsár vel. Stjórnin hefur hist reglulega og við reynt að fóta okkur í fjölbreyttu starfi félagsins líkt og í kennarastarfinu.

Með fullt skapandi frelsi frá Kennarasambandinu var okkar fyrsta verkefni að finna nafn á félagið og var stjórnin samhljóða um að félagið skyldi heita Rökvís. Merking orðsins er að vera vitur eða fróður og teljum við það eiga vel við kennara. Nýr kennari sem hefur störf eftir langa háskólagöngu er fullur af nýrri visku. Við erum Rökvís.

Viljum efla og styðja nýliða

Við höfum fengið mörg skemmtileg verkefni frá Kennarasambandinu á fyrsta árinu, þar sem málefni nýliða hafa verið aðalviðfangsefnið. Tveir stjórnarmenn Rökvís sátu fund Skólamálaráðs KÍ í mars sem okkur fannst mjög spennandi og skemmtileg upplifun og lærðum við mjög mikið af aðildarfélögunum.

Formanni félagsins, Elísabetu Soffíu Bender, var falið að svara spurningunni „af hverju kennarastarfið?“ á fundi Skólamálaráðs. Erindi hennar, þar sem hún tíundaði ástæður sínar fyrir að sækja sér kennaramenntun og hefja feril í kennslu, var bæði líflegt og skemmtilegt.

Á fundinum komu einnig fram margar tillögur um hvernig væri hægt að hátta starfsemi félagsins. Það var að mörgu leyti gott að fá hugmyndir og ráð frá reyndu fólki enda getur verið yfirþyrmandi að fylgja nýstofnuðu og ómótuðu félagi úr hlaði. Verkefnið er stórt og umfangsmikið og félagið hefur mikinn vilja til að efla og styðja við nýliða í kennslu

Eigum margt ólært

Háskóli Íslands fól einnig félaginu skemmtileg verkefni á árinu. Okkur var boðið að taka þátt í pallborði á viðburði á vegum Háskólans um málefni nýliða í kennslu og fór formaðurinn fyrir hönd félagsins og stóð sig vel.

Á viðburðinum var okkur gefinn aðgangur að ýmsum rannsóknargögnum, ritgerðum og greinum sem áhugavert var að glugga í. Rannsóknirnar sýna að á meðan kennari hefur góða bóklega þekkingu á kennarastarfinu, svo sem á skipulagi, fjölbreyttum kennsluháttum og aðferðum við bekkjar- og agastjórnun, við brautskráningu, hefur hann ekki fengið næg tækifæri til að notfæra sér fræðin og kunnáttuna.

„Nýr kennari sem hefur störf eftir langa háskóla göngu er fullur af nýrri visku. Hann er rökvís.“

Kennarastarfið er miklu meira en bara það sem gerist á gólfinu milli átta og tvö á daginn og út frá niðurstöðum þeirra rannsókna sem við fengum aðgang að teljum við, sem nýliðar, að við eigum margt eftir ólært.

Til að mynda veita ekki allir háskólar sem mennta kennara eða skólastofnanir nýliðum öll þau réttindi sem þeir eiga rétt á. Nýliðar eiga til dæmis rétt á leiðsögn frá reyndum kennara í eitt ár. Margir fá þó aðeins leiðsögn frá teymiskennurum, sem oft og tíðum eru svipað reynslumiklir og nýliðarnir sjálfir. Slíkur stuðningur getur verið ómarkvissari og fellur jafnvel oft á milli stafs og hurðar í þessu annasama starfi.

Þá heimsóttum við mennta- og barnamálaráðuneytið á árinu sem var mjög áhugavert og við teljum gott samstarf vera að myndast. Einnig höfum við haldið jafningjahittinga sem gefa félagsfólki færi á að koma saman og ræða málin.

Fræðsla og samkomuvettvangur

Á næsta starfsári langar okkur að bæta við félagsmönnum. Þá viljum við fá frekari tækifæri til þess að ræða við kennaranema á síðasta ári meistaranáms og kynna fyrir þeim starfsemi Rökvís. Nú þegar höfum við verið með kynningu fyrir lokaársnema á leikskólastigi sem gekk vel.

Á komandi ári viljum við í Rökvís leggja áherslu á að efla starf okkar með því að bjóða upp á fjölbreytta fræðslu fyrir nýliða, bæði til að kynna þeim réttindi sín og spennandi nýjungar sem þeir geta nýtt sér í starfi. Við stefnum því á að halda fræðslutengdan viðburð á árinu. Rökvís á líka að vera samkomuvettvangur þar sem nýliðar á öllum skólastigum geta veitt hver öðrum stuðning og munum við því halda áfram með og efla jafningjahittinga.

Við hvetjum alla nýliða á öllum skólastigum sem hafa áhuga á að taka þátt í starfinu til að hafa samband við okkur og fylgjast með okkur á samfélagsmiðlum. Þar munu koma nánari upplýsingar um komandi jafningjahittinga.

Með kærri kveðju frá stjórn Rökvís.