Nýársferð kennara á vísindaveislu
Fréttir|18. júní 2015
NaNO við Menntavísindasvið HÍ hvetur til hópferðar kennara á árlega ráðstefnu Association for Science Education (ASE) 6.–9. janúar 2016 í Birmingham í Bretlandi. Ráðstefnan er fyrir leik-, grunn- og framhaldsskólakennara með fjölbreytt efni sem nýtist í kennslu.
Hvenær: 6.–9. janúar 2016. Mögulega farið utan degi fyrr og komið heim degi síðar.
Hvar: University of Birmingham í Bretlandi.
Hvers vegna:
- Tilvalið tækifæri til starfsþróunar og símenntunar hjá kennurum sem kenna náttúrufræðigreinar.
- Vettvangur til tengslamyndunar í hópi kennara, bæði innan íslenska hópsins og með erlendum kollegum.
- Samvera/námsamfélag, fyrir ráðstefnuna, á ráðstefnunni og eftir ráðstefnuna. Þannig getur íslenski hópurinn verið betur undirbúinn og kennarar lært af reynslu hvers annars eftir ráðstefnuna.
Upplýsingar um kostnað:
- Ferðakostnaður.
- Flug um 25–30 þúsund kr. til London og 15–30 þúsund kr. lestarferð til Birmingham (1,5 klst.).
- Flug um 60–75 þúsund kr. til Birmingham (með millilendingu).
- Ráðstefnugjaldið er 348 £.
- Ódýrara er fyrir ASE meðlimi, 166 £. Það gæti borgað sig að gerast meðlimur.
- Unnt er að fá að auki 15 % hópafslátt þegar íslenski hópurinn skráir sig saman.
- Snemmskráning er fram til 23. október 2015. Eftir þann tíma hækkar gjaldið.
- Ráðstefnugjaldið er því á bilinu 35–80 þúsund krónur eftir því hvaða leið er farin.
- Kostnaður við gistingu bætist við.
- Endurmenntunarsjóðir KÍ geta styrkt félaga um ferða-, gisti- og ráðstefnukostnað.
Næstu skref:
Ef þú hefur áhuga á þátttöku í hópferð á ASE, hafðu samband við Birgi á birgira@hi.is fyrir 1. sept. 2015.
Nánari upplýsingar:
Nánari upplýsingar er unnt að fá á vefsíðu ráðstefnunnar og hjá Birgi hjá HÍ: birgira@hi.is.