Ný stjórn Vísindasjóðs FF og FS

Fréttir|8. nóvember 2016

Ólafur Þórisson, framhaldsskólakennari í MS, og Jón Ragnar Ragnarsson, framhaldsskólakennari í MH, voru kosnir í stjórn Vísindasjóðs FF og FS á aukaaðalfundi Félags framhaldsskólakennara sem fram fór í Borgarholtsskóla í gær. Gísli Þór Sigurgeirsson, sem átti sæti í fyrri stjórn, var kosinn í varastjórn

Guðmundur Björgvin Gylfason dró framboð sitt til baka í upphafi fundar. Erla Elín Hansdóttir víkur úr stjórn sjóðsins en hún gaf ekki kost á til endurkjörs.

Alls höfðu 68 atkvæðisrétt á fundinum og af þeim kusu 52, eða 76,4%. Tveir skiluðu auðu. Lilja S. Ólafsdóttir á sæti í stjórn sjóðsins fyrir hönd Félags stjórnenda í framhaldsskólum.

Ólafur og Jón Ragnar skipa nú nýja stjórn Vísindasjóðs FF og FS ásamt Lilju S. Ólafsdóttur sem er fulltrúi Félags stjórnenda í framhaldsskólum. 

Ný stjórn Vísindasjóðs kemur saman í dag.