Ný stjórn tekin við í Félagi stjórnenda leikskóla
Fréttir|18. maí 2022

Félag stjórnenda leikskóla hélt aðalfund á Grand Hótel Reykjavík 12. maí síðastliðinn.
Ný stjórn FSL tók formlega við á aðalfundinum. Stjórnin hélt sinn fyrsta stjórnarfund, í húsakynnum KÍ, við Borgartún í dag
Stjórnina skipa Sigurður Sigurjónsson formaður, Halldóra Guðmundsdóttir, varaformaður, Anna Björk Marteinsdóttir ritari, Ásta María Björnsdóttir gjaldkeri og María Petrína Berg, sem verður formaður skólamálanefndar FSL.
Sjálfkjörið var í stjórnina. Fráfarandi stjórnarkonur eru þær Hulda Jóhannsdóttir, Jónína Hauksdóttir og Sigrún Hulda Jónsdóttir.
Sú breyting var gerð á lögum FSL að skólamálefnd hefur verið færð undir verksvið stjórnar félagsins.
Á aðalfundi FSL var jafnframt kosið í eftirfarandi nefndir og var niðurstaðan þessi:
Samninganefnd
- Elín Friðriksdóttir
- Halla Ösp Hallsdóttir
- Bergný Ösp Sigurðardóttir
- Anna Metta Norðdahl
- Sigríður Herdís Pálsdóttir
Kjörstjórn
- Agnes Ósk Egilsdóttir
- Hulda Jóhannsdóttir
- Sigurbaldur P. Frímannsson
- Varamaður: Edda Valsdóttir
Framboðsnefnd
- Agnes Ósk Egilsdóttir
- Lísa Lotta Björnsdóttir
- Sigurbaldur P. Frímannsson
Skoðunarmenn reikninga
- Guðný A. Þóreyjar Ragnarsdóttir
- Helga Björk Jóhannsdóttir