Ný Skólavarða komin út

Fréttir|12. maí 2014

Fyrsta tölublað ársins af Skólavörðunni, málgagni Kennarasambandsins, er komið út. Blaðið er stútfullt af spennandi efni um skólamál og starfsemi Kennarasambandsins. Meðal þess er:

  • „Kynslóðabilið brúað í Varmárskóla“. Tíundu bekkingar kenna eldri borgurum á tölvur
  • „Er góð í brekkum“. Viðtal við nýjan formann Félags framhaldsskólakennara
  • „Listin kennir okkur að skilja hvert annað“. Viðtal við dr. Lindu Nathan
  • „Framhaldsskólar á barmi gjaldþrots“. Umfjöllun um fjárhagsstöðu framhaldsskólanna
  • „Undirbúa stofnun félags hinsegin kennara“
  • „Nótan er eins og demantur“. Uppskeruhátíð tónlistarskólana var glæsileg í ár
  • „Sagan leynist í hverjum steini“. Námsferð starfsfólks leikskólans Urðarhóls austur á land

 

Skólavarðan í lesforritinu ISSUU          Skólavarðan á PDF