Ný reiknivél sem sýnir samanburð á launum sérfræðinga

Fréttir|19. febrúar 2026
Mika Baumeister Wpnoqo2plfa Unsplash

Viltu skoða muninn á grunnlaunum, samsetningu launa og/eða launaþróun í hópum sérfræðinga hér á landi?

Hagfræðingur KÍ hefur sett í loftið áhugaverða gagnvirka reiknivél þar sem hægt er að skoða tölur Hagstofu Íslands er varða laun, launaþróun og samsetningu launa sérfræðinga sem starfa í ýmsum atvinnugreinum hér á landi. 

Möguleikarnir í reiknivélinni eru ótalmargir og hægt að bera saman hópa sérfræðinga er kemur að grunnlaunum, heildarlaunum, launaaukum og svo mætti áfram telja. 

Til dæmis sýnir reiknivélin að miðgildi reglulegra launa fullvinnandi sérfræðinga hjá sveitarfélögum var að jafnaði 735 þúsund krónur á mánuði árið 2024 en sambærileg laun sérfræðinga sem starfa á almennum markaði voru 1.093.000 á mánuði, eða 45 prósent hærri. 

 

Picture1

Enn fremur má sjá að meðaltal grunnlauna sérfræðinga í fræðslustarfsemi hækkað um rúm 86 prósent á milli áranna 2014 og 2024. Launin fóru úr því að vera að meðaltali 404 þúsund árið 2014 í að vera 753 þúsund á mánuði árið 2024. 

 

Picture2

 

Samsetning launa er afar misjöfn

Í reiknivélinni er einnig hægt að sjá samsetningu heildarlauna fullvinnandi sérfræðinga eftir hópum, atvinnugreinum og störfum. Samsetningin getur verið með mjög misjöfnum hætti.

Sem dæmi má skoða samsetningu heildarlauna fimm starfa sérfræðinga. Þar kemur meðal annars fram að grunnlaun sérfræðinga sem starfa við lækningar (starfanúmer 2221) eru aðeins rétt rúmlega helmingur eða 51% af meðal heildarlaunum þeirra árið 2024 en sambærilegt hlutfall grunnlauna af heildarlaunum sérfræðinga sem starfa við kennslu á leikskólastigi er 92 prósent. 

Reiknivélin býður upp á marga möguleika og er afar aðgengileg. Þá er auk þess hægt að lesa sig til að um öll þau hugtök sem koma fram. 

 

Picture3