Ný reglugerð um einelti, áreitni og ofbeldi á vinnustöðum

Fréttir|11. nóvember 2015

Félags- og húsnæðismálaráðherra, Eygló Harðardóttir, hefur sett nýja reglugerð þar sem kveðið er á um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Öllum vinnustöðum verður skylt að gera áætlun um aðgerðir til að sporna við þessum þáttum og um viðbrögð ef á reynir. 

Samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum er öllum vinnustöðum skylt að gera áhættumat með því að greina hugsanlega áhættuþætti sem ógna öryggi. Í nýju reglugerðinni er með skýrum hætti kveðið á um að við gerð áhættumats skuli meðal annars greina áhættuþætti eineltis, áreitni og ofbeldis á vinnustað þar sem tekið skuli tillit til andlegra og félagslegra þátta, svo sem aldurs starfsmanna, kynjahlutfalls, ólíks menningarlegs bakgrunns starfsfólks, skipulags vinnutíma, vinnuálags og fleira. Þannig er áhættumatinu ætlað að taka mið af aðstæðum á hverjum stað. 

Nýja reglugerðin er frábrugðin þeirri gömlu fyrir nokkra hluta sakir. Skilgreiningu eineltis hefur verið breytt og er hún ítarlegri en áður og auk þess hefur hugtökunum kynferðislegri áreitni, kyndbundinni áreitni og ofbeldi verið bætt inn. Þá er nýtt að kveðið er á um að atvinnurekandi eigi að grípa til aðgerða þótt mat á aðstæðum leiði í ljós að einelti, kynferðisleg áreitini, kynbundin áreitni eða ofbeldi hafi ekki átt sér stað – atvinnurekandi skal í slíkum tilfellum uppræta þær aðstæður sem kvartað hefur verið yfir eða honum hefur verið bent á og koma þannig að veg fyrir að ekki komi til eineltis eða ofbeldis vegna þeirra. 

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir setningu nýju reglugerðarinnar mikilvægan áfanga og vonast til að betur verði tryggt að tekið sé skipulega, faglega og af festu á einelti, kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. 

Nýja reglugerðin.