Ný námskeið í boði hjá Menntafléttu

Fréttir|5. desember 2024

Menntafléttan býður upp á þrjú ný námskeið í janúar 2025. Námskeiðin, sem fara fram á netinu, eru ókeypis fyrir allt félagsfólk.

Námskeiðin þrjú sem í boði eru fyrir allt félagsfólk, þeim að kostnaðarlausu, hverfast um jákvæð samskipti, lestrarkennslu og erfiða hegðun. Einnig fylgir með bréf um ókeypis ráðgjöf tengdri námskeiði sem er í boði fyrir alla sem sækja námskeið.

 

Lausnahringurinn - að byggja upp jákvæða menningu í samskiptum

Lausnahringurinn er ómetanlegur stuðningur fyrir skólasamfélag í að byggja upp jákvæða menningu í samskiptum. Námskeiðið er ætlað starfsfólki leik-, grunn- og framhaldsskóla og fer fram 22. janúar til 2. apríl 2025. Kennari er Arnrún María Magnúsdóttir.

Hugmyndin á bakvið Lausnahringinn er fengin frá Uppeldisstefnunni Jákvæðum aga og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hugsunin hjá upphafsmanneskju Lausnahringsins, Arnrúnu Maríu kennara þessa námskeiðs, var að finna leið til að efla forvarnir og fræðslu gegn ofbeldi og misbeitingu á börnum. Að heyra raddir barnanna og hvetja þau til þátttöku að búa til regluverk sem þau sæju um að móta og þróa áfram í takt við aldur og þroska. Markmiðið er að ná að virkja börn og ungmenni með í þetta einfalda og lausnamiðaða verkfæri sem Lausnahringurinn er. Hægt er að flétta boðskap hans inn í allar stundir dagsins, segir á vef Menntafléttu um námskeiðið.

Hér er hægt að kynna sér námskeiðið betur. 

 

Lestrarkennsla á yngsta stigi í grunnskóla

Lestrarkennsla á yngsta stigi í grunnskóla hefst 21. janúar og klárast 1. apríl 2025. Kennt er í sex lotum frá klukkan 14.15-15.45. Námskeiðið er ætlað kennurum og skólafólki yngsta stigs grunnskóla. Kennari er Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir.

Á námskeiðinu verður fjallað um lestrarkennslu út frá áherslum aðalnámskrár í íslensku: á talað mál, hlustun og áhorf, á lestur og bókmenntir, á ritun og á málfræði. Auk þess verður leitast við að skoða hvaða grunn að læsi leikskólinn veitir, hvernig mat á læsi fer fram í leikskólum og hvernig grunnskólinn getur nýtt sér það mat sem grunn að skipulagi á námi og kennslu í upphafi lestrarnámsins, líkt og segir á vef Menntafléttu. Hér er hægt að lesa meira um námskeiðið.

 

 

Erfið hegðun barna og unglinga

Námsekiðið er kennt á vorönn 2025. Námskeiðið styrkir skólafólk í að takast á við erfiða hegðun barna með gagnreyndum aðferðum, svo sem jákvæðum uppeldisráðum, aðlögun umhverfis, viðbragðsáætlunum og tengslamyndun. Markmiðið með námskeiðinu er að auka skilning skólafólks á hegðun barna, efla færni þeirra í að takast á við hegðunarvanda og kynna aðferðir til að stuðla að jákvæðri hegðun.