Ný lög um borgaralegar skyldur samþykkt

Fréttir|1. apríl 2020

„Það er borgaraleg skylda starfsmanna opinberra aðila að gegna störfum í þágu almannavarna á hættustundu.“ Svo segir nú í lögum um almannavarnir.

Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum nr. 82/2008 um almannavarnir. Bætt hefur verið inn svohljóðandi grein um borgaralegar skyldur opinberra starfsmanna á hættustundu.

„Það er borgaraleg skylda starfsmanna opinberra aðila að gegna störfum í þágu almannavarna á hættustundu. Opinberum aðilum er heimilt að fela starfsmönnum tímabundið breyttar starfsskyldur og að flytja starfsmenn tímabundið milli starfsstöðva og opinberra aðila til að sinna verkefnum sem hafa forgang á hættustundu. Starfsmenn halda óbreyttum launakjörum við slíkar aðstæður. Þó er starfsmaður undanþeginn framangreindri skyldu sé heilsufari hans, eða annars einstaklings sem hann ber ábyrgð á, svo háttað að öryggi hans og heilsu sé stefnt í sérstaka hættu með því að fela honum að gegna slíkum störfum.“

Hættustund telst samkvæmt lögunum vera til staðar þegar ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir hæsta almannavarnarstigi.

Kennarasamband Íslands lagðist gegn lagabreytingunni og taldi hana ganga of langt. Þeirri afstöðu var komið á framfæri með umsögn og samtali við fulltrúa í Allsherjar- og menntamálanefnd. Í meðförum nefndarinnar kom fram breytingartillaga um að lagagreinin yrði aðeins tímabundin, til öryggis ef á þyrfti að halda í yfirvofandi faraldri, og að farið yrði í vandlega endurskoðun almannavarnarlaga í kjölfarið. Alþingi féllst á breytingatillöguna og mun hin nýja grein því falla sjálfkrafa úr lögum um næstu áramót.

Rétt er að taka fram að sú grein sem um ræðir gildir aðeins á meðan neyðarstigi er lýst yfir. Ríkislögreglustjóri lýsti yfir neyðarstigi almannavarna 6. mars síðastliðinn og er það enn í gildi.

Færist staðan aftur á hættustig eða óvissustig gilda valdheimildir greinarinnar ekki lengur. Neðarlega á vef Almannavarna eru birtar auglýsingar um almannavarnastig þegar við á.

Lagabreytingin á að tryggja að hægt sé að sinna nauðsynlegum forgangsverkefnum á hættustundu með tilflutningi starfsfólks. Við beitingu slíkrar heimildar er gerð ríkuleg krafa um að meðalhófs sé gætt. Eftir sem áður er æskilegt að ógn eða óvæntri hættu sé mætt með gagnkvæmum sveigjanleika í stað valdboðs. Á það einnig við þótt neyðarstigi almannavarna hafi ekki verið lýst yfir.

Aðildarfélög Kennarasambands Íslands vilja beina því til félagsfólks að hafa samband við félög sín verði gripið til aðgerða á grundvelli hinnar nýju greinar. Það er mikilvægt til að hægt sé að hafa yfirsýn og eftirlit með framkvæmd laganna.

 

Þakklæti og hrós til skólafólks

Enn fremur vill Kennarasambandið koma á framfæri þakklæti til félagsfólks sem hefur lagt mikið á sig til að halda menntakerfinu gangandi á þessum krefjandi tímum.

Eins vill Kennarasambandið hrósa þeim rekstraraðilum skóla, sem eru fjölmargir, sem hafa stutt við nemendur og starfsfólk með margvíslegum hætti og þannig staðið vörð um faglegt starf á síðustu vikum.