Ný framtíðarsýn um starfsþróun kennara og skólastjórnenda

Fréttir|14. mars 2016

Fagráð um símenntun og starfsþróun kennara afhenti Illuga Gunnarssyni, mennta- og menningarmálaráðherra, lokaskýrslu um störf sín í síðustu viku. 

Í skýrslunni kemur fram ný framtíðarsýn um starfsþróun kennara og skólastjórnenda með áherslu á kennaramenntun sem starfsævilanga menntun, að skilgreina þurfi fjármagn sem og aðgengilegt og skilvirkt stoðkerfi um þessa mikilvægu starfsemi, og að ráðherra skipi samstarfsráð um starfsþróun skólastjórnenda sem fylgi eftir tillögum fagráðsins með tilnefningum frá mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambandi Íslands, Skólameistarafélagi Íslands, Menntavísindasviði HÍ, Háskólanum á Akureyri og Listaháskóla Íslands. 

Fagráð um símenntun og starfsþróun kennara var stofnað með skipunarbréfi mennta- og menningarmálaráðherra 17. febrúar 2013 og skipað fulltrúm ráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambands Íslands og þriggja háskóla sem mennta kennara: HÍ, HA og LHÍ. 

Skýrsluna og fylgirit hennar má finna á vef fagráðsins.

Þar er einnig nánari upplýsingar um fagráðið og störf þess.