Núvitund skilar ávinningi

Fréttir|10. febrúar 2015

Núvitund hefur verið innleidd í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði frá árinu 2012. Byrjað var á að gefa starfsfólki kost á sækja námskeið í núvitund og síðasta vor var fyrsta námskeiðið fyrir nemendur. Nú hafa rúmlega eitt hundrað nemendur lokið níu vikna námskeiði í núvítund. 

Þetta kemur fram í Vikupósti sem þær Bryndís Jóna Jónsdóttir mannauðsstjóri, Helga Valtýsdóttir námsráðgjafi og Sunna Þórarinsdóttir námsráðgjafi skrifa og birtist á vefsíðu FF. „Núvitund felst í því að upplifa líðandi stund, að leggja sig fram um að vera andlega og líkamlega til staðar. Núvitund er hugarþjálfun þar sem markmiðið er að fá það besta út úr hverri stund," skrifa greinarhöfundar. 

Bryndís, Helga og Sunna segja mikinn ávinning fólginn í innleiðingu núvitundar; það hafi jákvæð áhrif á skólabrag, skapi hvetjandi umhverfi til náms, veiti ánægju og vellíðan í starfi. Vikupóstinn má lesa hér.