Nú liggur á að við temjum okkur gagnrýna hugsun

Fréttir|7. janúar 2026
Courtney Corlew Eni0h6wm6s Unsplash

Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber, sérfræðingur í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum, fjallar um birtingarmyndir og viðbrögð við stafrænu ofbeldi.

Að meiða – hvað merkir það?

Stundum er talað um að „veröldin sé komin í símann“. Við sogumst að skjánum, vinnum í tölvum, fáum upplýsingar og fréttir af fólki á samfélagsmiðlum, tölum saman á samskiptaforritum, fylgjumst með fréttum á netinu og svo er það algóritminn sem beinir að okkur því sem við sýnum áhuga. Við lifum í hellum, bergmálshellum og erum mismeðvituð um það.

Gervigreindin (eða vitlíkið eins og frændfólk okkar í Færeyjum kallar fyrirbærið af mikilli snilld) er enn ein viðbótin við okkar stafrænu veröld og bergmálshellinn. Nú liggur á að við temjum okkur gagnrýna hugsun og kennum börnunum okkar hana. Ekki er ábyrgðin minni hjá kennurum sem þurfa m.a. að kenna nemendum að nýta og beita stafrænni tækni á skynsaman og agaðan hátt. Kenna þeim að draga í efa það sem þau lesa, sjá og heyra, afla sér upplýsinga um uppruna frétta og staðhæfinga og að nota miðlana á heiðarlegan og nytsaman hátt.

Líf okkar er á skjánum

Stafrænt ofbeldi er staðreynd í heimi þar sem líf okkar er á skjánum. Sum okkar muna þegar eldri nemendur í grunnskólum og framhaldsskólanemendur fengu farsíma með myndavél í hendur og áttuðu sig á því að hægt væri að taka myndir af kennurum (sérstaklega bakhlutanum) eða taka myndbönd í kennslustundum. Myndefni sem ferðaðist milli nemenda með smsum, flakkaði milli skóla og fékk víðtæka dreifingu. Þetta vakti ugg meðal okkar kennaranna, hvenær kæmi röðin að okkur? Ég man að ég ræddi þetta við mína nemendur, um afleiðingar, áhrif og skaðsemi. Hvernig mér liði við tilhugsunina um svona berskjöldun í von um að þau myndu taka það til sín. Ég veit ekki betur en að ég hafi sloppið þá. En hver veit...

Nýjasta verkfærið í bakpokum nemendanna er gervigreindin. Hún getur gert alls konar sniðugt, gert útdrætti úr bókum sem finnast á netinu, skrifað ritgerðir, leyst verkefni og búið til myndir af hinum og þessum í súrum, neyðarlegum eða jafnvel ósæmilegum aðstæðum svo fátt eitt sé nefnt.

 

Kaja Sariwating Ueemt2sndsq Unsplash

 

Hvað er þetta?

Stafrænt ofbeldi getur falist víða og er það í raun upplifunin sem gildir. Við erum líka misvel í stakk búin að hrista af okkur áreitnina og láta hana ekki hafa áhrif á okkur. Heilt yfir er þetta eins og fyrr segir efni sem berst með eða birtist á stafrænum miðlum og er ætlað að gera lítið úr, áreita, hóta eða hræða. Stafrænt ofbeldi hefur nokkrar birtingarmyndir og getur það átt uppruna sinn í raunheimi en færst svo yfir á stafræna miðla, t.d. sem umtal á lokuðum samfélagsmiðlahópum. Birtingamyndirnar má setja í eftirtalda flokka en þetta er ekki tæmandi upptalning:

  • Upptökur og myndbirtingar af kennurum á samfélagsmiðlum.
  • Umræða á samfélagsmiðlum um nafngreinda kennara í opnum/lokuð um hópum.
  • Myndbönd útbúin í þeim tilgangi að lítillækka kennara og nemendur (nú með aðstoð gervigreindar).
  • Umfjöllun, endurritun eða samheng islaus glærubirting úr kennslustund á samfélags eða fréttamiðlum.

Ljóst er að umfjallanir sem þessar eru stundum án ígrundunar og aldrei geranda til sóma en þær meiða og hafa sömu áhrif og annað ofbeldi. Berskjöldunin er algjör og upplifir sá er fyrir verður mikið varnarleysi gagnvart umfjölluninni. Andlegir áverkar verða hvað verstir þegar ráðist er að einkalífi eða persónu með myndbirtingum, nafngreiningu, baktali og/eða meiðyrðum. Fólk sem verður fyrir stafrænni árás er jafn viðkvæmt og í sömu heilsufarslegu hættu og fólk sem verður fyrir einelti, kynferðislegri eða kynbundinni áreitni eða ofbeldi (EKKO). Einkennin geta m.a. verið ótti, streita, kvíði, aukin þreyta, einbeitingarskortur og svefnerfiðleikar.

Philipp Katzenberger Iijruoerocq Unsplash

Andlegir áverkar verða hvað verstir þegar ráðist er að einkalífi eða persónu með myndbirtingum, nafngreiningu, baktali og/eða meiðyrðum

Hvað getum við gert?

Setja þarf ákvæði um ábyrga notkun stafrænna miðla í skólareglur, samskiptasáttmála starfsfólks og reglur ætlaðar forráðafólki. Hér er ekki aðeins verið að tala um gervigreind heldur alla stafræna tækni því hægt er að beita fólk ofbeldi í gegnum samfélagsmiðla og aðra stafræna tækni. Því miður fer stafrænt ofbeldi og áreitni í garð kennara vaxandi og við því þarf að bregðast f ljótt og örugglega því allt ofbeldi í garð kennara er vinnuumhverfisvandi, ekki vandi þess sem fyrir verður.

Einstaklingur sem verður fyrir árás þarf að fá stuðning bæði stjórnenda og samstarfsfólks, honum þarf að bjóðast sálræn handleiðsla og trú á að á vandanum verði tekið. Slík árás getur verið metin sem vinnuslys, reynist hún alvarleg og afleiðingar langvarandi. Viðbrögð þurfa að vera skýr og er nauðsynlegt að þessi áhættuþáttur í vinnuumhverfi rati inn í áhættumat, útbúnar verði viðbragðsáætlanir og forvarnaáætlun.

Hluti forvarna er að setja reglur, kynna reglur og fá samtal um þær því öll umræða vekur til meðvitundar um skaðsemi og áhrif ofbeldis. Byggja þarf upp menningu innan skólasamfélagsins þar sem stafrænt öryggi og nethegðun er rædd á opinskáan hátt. Þessu til stuðnings hefur KÍ tekið saman upplýsingar um forvarnir við stafrænu ofbeldi á einblöðungi sem nefnist 9 góð ráð um forvarnir gegn stafrænu ofbeldi.

Sniðmátið Viðbrögð við stafrænni áreitni sem KÍ hefur einnig útbúið tekur svo málið áfram. Þar er skilgreint hvað gerist þegar eitthvað fer úrskeiðis, hver talar við hvern, hvernig er málið skráð og hvernig fær sá sem verður fyrir áreitni/ árás stuðning? Viðbragðsáætlunum er ætlað að auka sálrænt öryggi og traust starfsfólks til vinnustaða.

Mikilvægt er að halda atvikaskrá þar sem öll atvik eru skráð og þau áhættumetin þannig að öll viti hvernig skrá á atvik, hvaða atvik teljast léttvæg og hver alvarleg og hvert á að tilkynna þau alvarlegustu? Þetta þarf allt starfsfólk að vita, það eykur líka sálrænt öryggi og traust.

Besta ráðið er samt alltaf að ræða málið, tala saman. Tölum saman um afleiðingar, áhrif og skaðsemi þess þegar einhver meiðir annan, hvort sem það er í orðum eða gjörðum, skrifað eða sagt. Tölum um það hvernig okkur líður þegar einhver meiðir.

Að meiða, hvað merkir það?