Nú liggja öll framboð hjá FG fyrir

Fréttir|21. maí 2022

Framlengdur frestur til að bjóða sig fram í skólamálanefnd og kjörnefnd Félags grunnskólakennara rann út klukkan tvö í dag.

Félagsmenn í Félagi grunnskólakennara kjósa innan skamms stjórn, samninganefnd, skólamálanefnd og kjörnefnd félagsins fyrir kjörtímabilið 2022 til 2026. 

Rafræn atkvæðagreiðsla hefst klukkan 14 næstkomandi þriðjudag, 24. maí. 

Frambjóðendur til stjórnar og samninganefndar voru kynntir á fimmtudag. Nú liggur fyrir hverjir bjóða sig fram í kjörnefnd og skólamálanefnd félagsins en frestur til að bjóða sig fram í þessar tvær nefndir var framlengdur þar sem fjöldi frambjóðenda var ekki nægur. 

Frambjóðendur til skólamálanefndar í stafrófsfröð

  • Árný Jóna Stefánsdóttir, umsjónarkennari í Snælandsskóla
  • Dagný Rósa Úlfarsdóttir, umsjónarkennari í Höfðaskóla
  • Guðbjörg Íris Atladóttir, umsjónarkennari í Rimaskóla
  • Guðrún Hannesdóttir, kennari í Austurbæjarskóla
  • Jón Hjörtur Sigurðarson, kennari í Flóaskóla
  • Kristín Björnsdóttir, umsjónarkennari í Sunnulækjarskóla
  • Lára Guðrún Agnarsdóttir, kennari í Austurbæjarskóla
  • Pollý Rósa Brynjólfsdóttir, sérkennari í Brekkuskóla
  • Svava Þ. Hjaltalín, kennari í Giljaskóla
  • Úlfhildur H. Guðbjartsdóttir, kennari í Kvíslarskóla
  • Þorbjörg Guðumdsdóttir, kennari í Akurskóla
  • Þorbjörg Ólafsdóttir, umsjónarkennari í Síðuskóla
  • Þórey Björk Hjaltadóttir, umsjónarkennari í Ölduselsskóla

Kosnir verða sex aðalmenn og sex varamenn. Atkvæðamagn ræður hvaða sæti hver frambjóðandi fær. 

 

Frambjóðendur til kjörnefndar í stafrófsröð

  • Elín Guðfinna Thorarensen, umsjónarkennari í Ölduselsskóla
  • Erla Rán Kjartansdóttir, umsjónarkennari í Brekkuskóla
  • Inga Lóa Hannesdóttir, umsjónarkennari í Kirkjubæjarskóla
  • Páll Erlingsson, umsjónarkennari í Grunnskóla Grindavíkur
  • Þórey Björk Hjaltadóttir, umsjónarkennari í Ölduselsskóla

Kosnir verða þrír aðalmenn. Venjan er að kjósa þrjá varamenn en þeir verða tveir að svo stöddu. 

 

Skoða kynningarefni frambjóðenda

 

fréttin var uppfærð 22. maí 2022