Nú er tíminn til að standa saman

Fréttir|8. október 2020

„Kennarar hafa gegnt mikilvægu hlutverki við að halda samfélaginu gangandi og sinna nemendum sínum á þessum furðulegu tímum sem hafa leitt í ljós hversu mikil lífæð í samfélagi ungs fólks skólar eru," skrifar Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands, í haustútgáfu Skólavörðunnar.

Kennarasamband Íslands er á sínu tuttugasta og fyrsta starfsári og enn heyrast raddir þess efnis að kennara- og skólastjórnendafélögin sjö eigi ekki nægilega margt sameiginlegt til að það sé réttlætanlegt að eyða fullorðinsárunum í að byggja upp samband þeirra á milli. Samkvæmt lögum sambandsins er hlutverk þess einkum að gæta réttinda og hagsmuna félagsfólks og fara með samningsrétt um kaup og kjör. Samningsréttinum er svo framvísað til einstakra aðildarfélaga sem sjá að mestu um sín samningsmál. Því væri hægt að spyrja: Hvað er þá eftir? Hvað gerir KÍ að sambandi kennara og skólastjórnenda utan skólameistara neðan háskólastigs? Því er auðsvarað. Það eru hin fjölmörgu faglegu málefni sem tengja kennara og stjórnendur saman. Sjálfsmynd stéttarinnar eða ímynd er ekki hægt að kaupa eða fá utan frá. Hana byggja kennarar upp sjálfir. Stoð alls starfs eru hin faglegu mál stéttarinnar. Hvernig gengur í kjarasamningum ræðst af því hvernig fagmennsku okkar er háttað. Gegnum öflugt starf að skólamálum, samstarf við háskóla sem mennta kennara, hagsmunasamtök kennara í nágrannalöndum og samvinnu við menntamálayfirvöld byggjum við upp jákvæða ímynd af stéttinni og því má færa rök fyrir því að kjör stéttarinnar verði aldrei betri en trú hennar á fagmennsku sinni.

Hvernig gengur í kjarasamningum ræðst af því hvernig fagmennsku okkar er háttað.

Bandaríski heimspekingurinn og menntunarfræðingurinn John Dewey sagði ýmislegt um skólastarf sem er í senn klassískt og allra tíma. Hann hélt því fram að menntavísindi ættu ekki eingöngu að verða til hjá vísindamönnum í háskóla heldur einnig kennurunum sjálfum, að menntun væri í eðli sínu óvissuferð, að mismunandi aðferðir hittu nemendur fyrir á mismunandi hátt og að menntun hefði hliðstæð áhrif á samfélagið og næring hefur á lífveru, nefnilega að viðhalda lífi þess.
Kennarastarfið er margslungið og það er fjarri því að kennarar séu fullnuma er þeir hefja störf eftir háskólanám. Fagmennska þeirra byggist upp í starfi þeirra, bæði af eigin reynslu og samstarfi við aðra.

Fjölmargir þættir mynda grunninn að fagmennsku kennarans og gera honum kleift að ráða við erfiðar aðstæður, sinna nemendum sínum sem best og viðhalda jafnframt eigin starfshæfni. Kennarar þurfa að hafa sterka tilfinningu fyrir því hvert hlutverk þeirra sé og hvaða tilgang starf þeirra hafi. Því skiptir miklu máli að kennarar ígrundi sífellt eigið starf sitt og þrói sig í störfum sínum. Því var það fagnaðarefni og stórt framfaraskref þegar nýjum kennurum var tryggð leiðsögn í upphafi starfsferils síns. Þannig læra nýir kennarar af þeim sem reyndari eru og þeir reyndari kynnast nýjum hugmyndum og aðferðum þeirra sem yngri eru.

Því skiptir miklu máli að kennarar ígrundi sífellt eigið starf sitt og þrói sig í störfum sínum.

Það fer ekki hjá því að margt af þessu leiti á hugann nú þegar skólahald víðsvegar um heim er með óhefðbundnum hætti og 26 milljónir barna um heim allan hafa ekki komið inn í sína skóla síðan í mars. Hér á landi er ástandið sem betur fer ekki svona slæmt en þó hefur skert skólahald með fjarlægðartakmörkunum, fjarnámi, lokunum, sóttkví og því sem fylgir komið upp á öllum skólastigum og í tónlistarskólum síðan í vor. Við slíkar aðstæður getur skólahald aldrei orðið annað en skólahald við neyðaraðstæður. Sem betur fer hefur skólahald í leik- og grunnskólum verið með næstum eðlilegu sniði en sömu sögu er ekki að segja um framhalds- og háskóla. Þar fara nemendur í raun á mis við meginhlutverk framhaldsskóla um að stuðla að alhliða þroska þeirra og virkri þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi.

Kennarar hafa gegnt mikilvægu hlutverki við að halda samfélaginu gangandi og sinna nemendum sínum á þessum furðulegu tímum sem hafa leitt í ljós hversu mikil lífæð í samfélagi ungs fólks skólar eru. Hingað til hefur skólum og skólakerfinu verið tekið sem sjálfsögðum hlut. Gengið hefur verið að faglegu og góðu starfi sem vísu og vanmats hefur gætt á flóknum störfum kennara. Það er því skylda okkar nú að sjá til þess að heimurinn dragi lærdóm af heimsfaraldrinum. Til að það gerist verðum við að standa saman sem stétt og taka að okkur faglegt forystuhlutverk fyrir nemendur okkar, starfið og samfélagið.

Kennarar hafa verið alveg framúrskarandi á þessum ótrúlega erfiðu tímum. Nú er tíminn til að standa saman því saman höfum við kraftinn til að framkvæma raunverulegar breytingar í heiminum.

Við erum kennarastéttin.

 

Grein Önnu Maríu Gunnarsdóttur var birt í prentúgáfu Skólavörðunnar, 1. tbl. 2020.