Nótan 2023 – MYNDIR

Fréttir|20. mars 2023

Sannkölluð tónlistarveisla fór fram í Hörpu í gær þegar um fimm hundruð tónlistarnemar stigu á svið og fluttu tónlist af ýmsu tagi.

Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskóla, er árlegur viðburður og hefur verið frá árinu 2010 – ef frá er talið árið 2020 en þá varð að aflýsa hátíðinni vegna COVID.

Nótan í ár tókst í alla staði mjög vel og var húsfyllir í Hörpu. Flutt voru einleiksatriði, samspils- og hljómsveitaratriði og var efnisskráin afar fjölbreytt. Meðal tónhöfunda má nefna Mozart, Bartok, Freddie Mercury, Bach, James Brown, Rihönnu, Eurythmics og Lully. Þá voru einnig flutt frumsamin verk.

Óður til tónlistar

Lokaathöfnin var söguleg en þá fluttu um 140 nemar tónverk í fjórum köflum. Verkið var samið í vinnusmiðjum undir listrænni stjórn Sigrúnar Sævarsdóttur-Griffiths og stuðningi tónlistarkennara þeirra hópa sem tóku þátt. Verkið hlaut afar góðan hljómgrunn og tónlistarfólkinu var klappað lof í lófa.

Nótan er samstarfsverkefni Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Samtaka tónlistarskólastjóra. Hátíðinni er ætlað að endurspegla ólík viðfangsefni tónlistarnemenda og það fjölbreytta starf sem fer fram innan tónlistarskóla.

Tónlistarskólar landsins eru um 90 talsins og tónlistarnemarnir um 15 þúsund.