Nótan 2019: Svæðistónleikar um land allt og lokahátíð í Hofi
Fréttir|7. júní 2018

Þátttakendur í Nótunni eru á öllum aldri, á öllum stigum tónlistarnáms og koma hvaðanæva af landinu.
Undirbúningur fyrir Nótuna 2019 – uppskeruhátíð tónlistarskólanna er kominn á fullt. Nótan hefur verið árlegur viðburður síðan árið 2010 og er ætlað að vera vekja athygli á starfi tónlistarskólanna og um leið veita tónlistarnemendum viðurkenningu fyrir afrakstur vinnu sinnar. Þátttakendur í Nótunni eru á öllum aldri, á öllum stigum tónlistarnáms og koma hvaðanæva af landinu.
Svæðistónleikar Nótunnar 2019 verða haldnir á eftirtöldum stöðum og dögum:
- Kraginn, Suðurland og Suðurnes
Salnum í Kópavogi – laugardaginn 16. mars
- Norðurland / Austurland
Eskifjarðarkirkju – laugardaginn 23. mars
- Vesturland / Vestfirðir
Hjálmakletti, Menntaskóla Borgarfjarðar, Borgarbraut 54 – laugardaginn 23. mars
- Reykjavík
Salnum í Kópavogi – sunnudaginn 24. mars
Lokahátíð Nótunnar fer fram í Hofi á Akureyri laugardaginn 6. apríl.
Myndir frá Lokahátíð Nótunnar 2018.