Nótan - uppskeruhátíð tónlistarskóla um helgina

Fimm uppskeruhátíðir og streymi frá nokkrum stöðum
NÓTAN - uppskeruhátíð tónlistarskóla fer fram um helgina á fimm svæðistónleikum um landið. Tónlistarskólar landsins eru um 80 talsins og um 14.000 nemendur stunda nám innan tónlistarskólakerfisins. Tilgangur uppskeruhátíðarinnar er að beina kastljósinu að samfélagi tónlistarskóla og tónlistarnemenda.
NÓTAN – uppskeruhátíð tónlistarskóla var fyrst haldin skólaárið 2009-2010 og er árlegur viðburður í kerfi tónlistarskóla á Íslandi. Að Nótunni standa Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Samtök tónlistarskólastjóra. Hátíðin er í senn faglega hvetjandi og skemmtilegt innlegg í skólastarfið fyrir alla aðstandendur skólanna jafnt innan veggja þeirra sem utan. Síðustu tvö ár hefur ekki verið unnt að halda þessar uppskeruhátíðir með hefðbundnu sniði og er afar ánægjulegt að geta komið saman á ný og notið afraksturs skólastarfsins, á sama tíma og við vonandi kveðjum Covid-19 fyrir fullt og allt. Árið 2020 þurfti að fresta 10 ára afmælishátíð Nótunnar vegna Covid-19 og í fyrra fór fram Net-Nótan þar sem tónlistarskólar sendu inn myndbönd sem saman mynduðu sjónvarpsþætti á N4.
Grunnhugsun uppskeruhátíðar tónlistarskóla byggir á því að þátttakendur séu frá öllu landinu, á ólíkum aldri og öllum stigum tónlistarnámsins. Fyrirkomulagi hátíðarinnar er ætlað að endurspegla ólík viðfangsefni tónlistarnemenda og það fjölbreytta starf sem fram fer innan tónlistarskóla.
Hér að neðan má finna hlekki á svæðistónleikana sem fara fram á Eskifirði, Akureyri, í Stykkishólmi og tvennir tónleikar í Kópavogi. Streymt verður frá nokkrum stöðum.
- Austurland - Tónlistarmiðstöð Austurlands, Eskifirði, laugardaginn 19. mars
- Kraginn, Suðurland og Suðurnes - Salurinn í Kópavogi, laugardaginn 19. mars
- Norðurland - Hamraborg, Mennningarhúsinu Hofi, laugardaginn 19. mars
- Vesturland og Vestfirðir - Stykkishólmskirkja, laugardaginn 19. mars
- Reykjavík - Salurinn í Kópavogi, sunnudaginn 20. mars
