Norskir kollegar senda baráttukveðjur til KÍ

Fréttir|3. febrúar 2025

Landssamband skóla í Noregi lýsir yfir stuðningi við baráttu KÍ fyrir hærri launum og bættum starfskjörum. „Við stöndum með ykkur," segja samherjar okkar í Noregi.

Kennarasambandi Íslands hafa borist baráttu- og stuðningskveðjur frá kennurum og skólafólki í Landssambandi skóla (Skolenes Landsforbund) í Noregi. 

Landssambandið lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu KÍ fyrir hærri launum og bættum starfskjörum. 

„Landssamband skóla telur að allt starfsfólk í mennta- og uppeldisgeiranum eigi rétt á góðum launum og starfskjörum. Þetta á líka við um félaga okkar á Íslandi," segir í bréfinu til KÍ. 

Bréfið hljóðar svo á norsku

Kjære, Kennarasamband Islands

Full støtte til våre kolleger på Island som streiker for høyere lønn og bedre arbeidsforhold.

Skolenes landsforbund mener alle ansatte i utdannings- og oppvekstsektoren har krav på gode lønns- og arbeidsforhold. Det gjelder også våre kamerater på Island.

Vi står sammen med dere!

Hilsen,

Skolenes landsforbund – et forbund i LO.

 

Víðtækur stuðningur við baráttu kennara

Norska kennarasambandið, Utadanningsforbundet, sendi KÍ stuðningsyfirlýsingu í nóvember. Innanlands hafa VR, BSRB, BHM, Sameyki og Fagfélögin lýst stuðningi við baráttu KÍ fyrir bættum kjörum.