Norskir kennarar semja um kjör sín

Fréttir|2. september 2014

Verkfalli kennara í Noregi hefur verið aflýst en nýr miðlægur kjarasamningur Norska kennarasambandsins við sveitarfélögin er í höfn. Verkfallsaðgerðir hafa staðið yfir síðan snemmsumar og voru um átta þúsund kennarar í verkfalli þegar skrifað var undir samninginn.

Mikið var fjallað um vinnutíma í samningagerðinni og er niðurstaðan sú að kennsluskyldan verður ekki aukin en samið verður nánar um vinnutilhögun innan hvers skóla. „Við höldum sveigjanleikanum sem kennarar þurfa í starfi sínu svo þeir geti sinnt nemendum sínum vel,“ sagði Ragnhild Leid, leiðtogi Norska kennarasambandsins (Utdannigsforbundet).

Samningurinn verður nú borinn undir atkvæði en hann tekur ekki gildi fyrr en 1. ágúst 2015. Kynningu á innihaldi samningsins er að finna á vefsíðu Norska kennarasambandsins.