Norrænn leiðtogafundur um menntastefnu í Hörpu

Forystufólk norrænu kennarasambandanna áttu fund með menntamálaráðherrum Norðurlandanna í Hörpu í gær. Sjálfbærni í menntun var umræðuefni fundarins.
Hvernig aukum við vitund um sjálfbærni í menntun? Þessi spurning var alltumlykjandi á leiðtogafundi um menntastefnu á Norðurlöndunum sem fór í Reykjavík í gær.
Fundurinn var sögulegur að því leyti að ekki áður hafa ráðherrar menntamála og forystufólk kennarasambanda komið saman til formlegs fundar af þessu tagi.
Fyrstu funduðu leiðtogar norrænu kennarasambandanna og ræddu það sem efst er á baugi í stefnumótun menntamála í löndunum. Að loknum fundinum fundu komu menntamálaráðherrar Norðurlandanna, ásamt fylgdarfólki, til fundarins. Hófst þá formleg dagskrá.
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, setti fundinn. Hann sagði ánægjulegt að sitja svo sögulegan fund. Ráðherra sagði samtal milli fulltrúa Norðurlandanna afar mikilvægt og líklegt til að skila árangri. Hann sagði umræðuna snúast um hvernig auka megi vitund um sjálfbærni í menntakerfinu, hvaða verkfæri kennarar framtíðar munu þurfa og hvernig best megi styðja skólakerfið þessum málaflokki.
Því næst fluttu ávörp Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, og Christer Holmlund, formaður Norrænu kennarasamtakanna (NLS).
Bogi Ágústsson fréttamaður annaðist fundarstjórn.