Norrænir kennarar styðja baráttu kollega í Ameríku

NLS lýsir yfir eindreginni afstöðu með bandarískum kollegum í baráttunni gegn þeirri atlögu sem nú er gerð að opinberu menntakerfi vestanhafs. „Við verðum að standa vörð um þá meginreglu að öll börn eigi rétt á gjaldfrjálsri og jafnri opinberri menntun – óháð bakgrunni," segir meðal annars í yfirlýsingunni.
„Við megum ekki gleyma því að verkalýðshreyfingin er öflugasta lýðræðisafl heimsins. Þegar einræðishugmyndir ná fótfestu, beinist fyrsta atlaga þeirra oft að stéttarfélögunum – með það að markmiði að veikja eða brjóta þau niður."
Þetta er meðal þess sem kemur fram á afdráttarlausri yfirlýsingu Norrænu kennarasamtakanna (NLS) til handa kennurum og skólastjórnendum í Bandaríkjunum. Ríkisstjórn Trumps hefur fyrirskipað að bandaríska menntamálaráðuneytið verði nánast lagt niður og þykir með því að grafið sé verulega undan opinberu menntakerfi vestanhafs.
Tildrög yfirlýsingarinnar má rekja til þess að forvígiskonur tveggja kennarasambanda í Bandaríkjunum, Becky Pringle og Randi Weingarten, sóttu alþjóðlega leiðtogafundinn ISTP hérlendis í síðustu viku. Þær kynntu stöðuna heima fyrir á fundi í Hörpu.
Yfirlýsing NLS hljóðar svo
Samstaða með bandarískum kennurum – Vörn fyrir réttinn til að læra
Norrænu kennarasamtökin (NLS) lýsa yfir eindreginni samstöðu með bandarískum kollegum – félögum í National Education Association (NEA) og American Federation of Teachers (AFT) – sem nú standa í fremstu víglínu í baráttunni fyrir opinberu menntakerfi og lýðræðislegum réttindum.
Það sem nú á sér stað í Bandaríkjunum er markviss og alvarleg atlaga að hinu opinbera menntakerfi. Stjórnvöld, undir forystu Donalds Trump, og bandamenn þeirra vinna að því að veikja og í raun afnema bandaríska menntamálaráðuneytið, og grafa þannig undan því grundvallarhlutverki menntunar sem er að stuðla að félagslegu réttlæti og lýðræðisþróun.
Það eru þeir viðkvæmustu í samfélaginu sem verða verst úti vegna aðgerðanna: börn úr tekjulágum fjölskyldum, nemendur með fötlun, fjöltyngd börn og aðrir hópar sem þegar mæta miklum hindrunum í menntakerfinu.
Leiðtogar stærstu kennarasamtaka Bandaríkjanna, Becky Pringle (NEA) og Randi Weingarten (AFT), undirstrika að hér sé ekki einungis ráðist að kennurum – heldur að sjálfum réttinum til að læra. Báðar vara þær við þróun sem ber öll merki þess að Bandaríkin stefni í átt að einræðislegu stjórnarfari. Kennarar, nemendur og stéttarfélög eru skotmörk pólitískra afla sem vilja þagga niður í gagnrýnisröddum og ná yfirráðum yfir menntastofnunum – og í raun yfir þekkingu og sannleika.
Eins og Becky Pringle sagði: „Þessi þróun stefnir á þitt land – eða er þegar komin.“ Þessi viðvörun á erindi við okkur á Norðurlöndunum – og í Evrópu. Vaxandi ójöfnuður, niðurskurður í velferðarmálum, aukin markaðsvæðing menntunar og öfgakennd hægrisinnuð orðræða ógna bæði réttindum stéttarfélaga og lýðræðislegum grunngildum okkar.
Afstaða NLS er skýr: Við verðum að standa vörð um þá meginreglu að öll börn eigi rétt á gjaldfrjálsri og jafnri opinberri menntun – óháð bakgrunni. Við megum aldrei gefa eftir gagnvart öflum sem vilja grafa undan almannaþjónustu í þágu markaðshagsmuna og gróða.
Við lifum á tímum þar sem voldugustu og auðugustu menn heims sýna opinskátt hrifningu á einræðislegum hugmyndum, í þeim tilgangi að safna í hendur sér enn meiri völdum og auði – á kostnað almannahagsmuna. Á slíkum tímum verða kennarar og stéttarfélög að standa styrkum fótum og verja lýðræði, frelsi og samstöðu.
Við megum ekki gleyma því að verkalýðshreyfingin er öflugasta lýðræðisafl heimsins. Þegar einræðishugmyndir ná fótfestu, beinist fyrsta atlaga þeirra oft að stéttarfélögunum – með það að markmiði að veikja eða brjóta þau niður. Þess vegna verðum við að standa saman – yfir landamæri – til að verja réttinn til tjáningarfrelsis og þess að njóta vandaðrar menntunar, og fyrir að búa í samfélagi sem byggir á fjölbreytileika, jöfnuði og virðingu.
Við hjá NLS stöndum einlæglega með bandarískum kollegum okkar. Við viðurkennum réttmæti baráttu þeirra – fyrir menntun, réttlæti og lýðræði. Við heitum því að styðja þá og vekja máls á málefnum þeirra hér á Norðurlöndum.
– Við stöndum saman – fyrir réttinn til að læra
– Við stöndum saman – fyrir opinbera menntun
– Við stöndum saman – fyrir lýðræði
Norrænu kennarasamtökin / Nordiske Lærerorganisationers Samråd
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, Becky Pringle, formaður NEA, David Edwards, framkvæmdastjóri Education International, Randi Weingarten, formaður AFT, og Mugwena Maluleke, forseti Education International. Myndin var tekin að loknum fundi um stöðuna í Bandaríkjunum í Hörpu í liðinni viku.