Norrænir kennarar funda um framtíðina í Reykjavík

Rúmlega 80 kennarar frá Norðurlöndunum funda um framtíðarhlutverk kennarans og áherslur í sjálfbærni í skólastarfi á Grand Hótel Reykjavík 27. og 28. september. Ráðstefnan er á vegum NLS.
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands skrifar:
„Þriðjudaginn 27. september og miðvikudaginn 28. september halda Norrænu kennarasamtökin NLS haustráðstefnu sína í Reykjavík. Alls verða rúmlega 80 kennarar á öllum skólastigum frá öllum Norðurlöndunum sem koma saman á Grand Hótel Reykjavík til að ræða framtíðarhlutverk kennarans og áherslur í sjálfbærni í skólastarfi. Ráðstefnan er hluti öflugs samstarfs kennara á Norðurlöndunum og styrkir sameiginlegan vettvang þeirra.
Í dag mættu þau Christer Holmgren og Maria Julin-Anderson frá skrifstofu NLS í Borgartúnið til að stilla síðustu strengina fyrir ráðstefnuna og kynna sér starfsemi KÍ í leiðinni. Við notuðum tækifærið og smelltum af þeim mynd.“
Kennarasamband Íslands á aðild að Norrænu kennarasamtökunum Nordiska Lärarorganisationers Samråd (NLS) sem eru samstarfsvettvangur norrænna stéttarfélaga kennara á öllum skólastigum. Eitt meginhlutverk samtakanna er að stuðla að þróun skólamála og auka vegsemd kennarastarfsins í samfélaginu. Fulltrúar KÍ sækja stjórnarfundi árlega og fundi fyrir hvert skólastig. Annað hvert ár stendur NSL fyrir haustráðstefnum fyrir fulltrúa aðildarfélaga samtakanna. Í þetta sinn er ráðstefnan haldin hér á landi.