Norræn menntun í alþjóðlegu ljósi
Fréttir|8. febrúar 2016
Efnt verður til ráðstefnu á vegum Teknisk- og naturvitenskapelige Universitet í Þrándheimi í Noregi dagana 10. til 13. maí 2106. Þema ráðstefnunnar er norræn kennaramenntun í alþjóðlegu ljósi.
Á vefsíðu norska háskólans segir að ráðstefnan sé nú haldin í 14. skiptið en hún hefur verið haldin annað hvert ár frá árinu 1991.
Aðalfyrirlesarar verða finnski fræðimaðurinn, Pasi Sahlberg, Jón Torfi Jónasson, prófessor á Menntavísindasviði HÍ, og Mari-Ann Igland frá Noregi.