Nordplus Junior: Fjárfesting í framtíðinni

Fréttir|18. ágúst 2024

Skólavarðan ræddi við Skúla Leifsson, sérfræðing hjá Rannís, um spennandi möguleika Nordplus Junior styrkja. Markmiðið með áætluninni er að styrkja fjölbreytt og áhugaverð verkefni sem efla gæði í menntun og kennslu.

Alþjóðlegt samstarf og þekkingarskipti eru sífellt mikilvægari fyrir íslenskt skólastarf. Nordplus Junior er ein af fimm undiráætlununum Nordplus en Junior er sérstaklega fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, auk verkefna á sviði starfsmenntunar.
Í Nordplus Junior er hægt að sækja um styrki fyrir samstarfsverkefni, þróunarverkefni, nemendaheimsóknir, kennaraskipti og þjálfun nema í starfsnámi, allt með það að markmiði að styrkja og stuðla að endurmenntun kennara og þróa skólastarfið. Við settumst niður með Skúla Leifssyni, sérfræðingi hjá Rannís, til að ræða um þá spennandi möguleika sem Nordplus Junior býður upp á.

Nýjar leiðir í námi

„Í verkefnum á vegum Nordplus Junior hafa til dæmis farið fram kennaraskipti þar sem kennarar hafa kynnt sér kennsluaðferðir og skólastarf í öðrum löndum,“ segir Skúli. „Auk þess eru dæmi um þróunarverkefni þar sem nýtt kennsluefni, námsaðferðir og nýjungar í skólastarfi eru tekin fram, allt í samvinnu við aðra skóla á Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum. Nemendaskiptin eru svo alltaf vinsælasti styrktarflokkur Nordplus Junior, sem gefur möguleikann á bekkjaskiptum.“

Nýjasta viðbótin við áætlunina eru námsheimsóknir fyrir kennarahópa og annað starfsfólk, til dæmis skólastjórnendur. „Þetta gefur skólum og skólaskrifstofum tækifæri til að kynna sér starfsemi annarra menntastofnana, rannsóknarmiðstöðva, ríkisstofnana og fleira, en þessi heimsókn þarf ekki að vera tvíhliða. Þessar heimsóknir eru hugsaðar til að efla þekkingarmyndun og fá hugmyndir og innblástur sem nýtast beint í starfi, útskýrir Skúli“.

Með því að taka þátt í Nordplus Junior opnum við ekki aðeins glugga að nýjum möguleikum fyrir nemendur og kennara heldur byggjum við einnig brýr milli menningarheima. Þetta er ekki bara fjárfesting í menntun heldur einnig í framtíð samfélaga okkar.

Umsóknarkröfurnar misjafnar eftir því hvað sótt er um

Til að sækja um styrk þurfa skólar að fylla út umsókn í gegnum umsóknarkerfið Espresso, sem finna má á vef Nordplus. Það hvaða skilyrði skólar þurfa að uppfylla til að geta sótt um styrk er aðeins misjafnt eftir því hvað sótt er um, segir Skúli.

„Ef sótt er um námsheimsókn eða undirbúningsheimsókn er umsóknarferlið frekar einfalt og aðeins þarf að vera með tengilið í einu öðru landi en ef sótt er um samstarfsverkefni eða þróunarverkefni þurfa samstarfsaðilarnir að vera að minnsta kosti þrír frá þremur löndum,“ Segir hann og bendir á að nánari upplýsingar sé að finna á heimasíðu og í handbók Nordplus. Svo megi alltaf hafa samband á nordplus@rannis.is. „Við getum alltaf leiðbeint áhugasömum aðilum um hvaða verkefnaflokkur hentar best.“

Umsókn um námsheimsókn er einföld. „Þar er mikilvægt að í umsókninni komi fram hvaða stofnun mun taka á móti hópnum og hvernig heimsóknin mun nýtast í starfi. Við leggjum áherslu á að hver skóli sendi að minnsta kosti tvo þátttakendur og að hámarki fimm og hver heimsókn getur varað í allt að fimm daga.“

Víkka sjóndeildarhringinn í skólaheimsókn

Skúli býr yfir mörgum sögum af skólum og verkefnum sem hafa nýtt sér áætlunina og árangri þeirra. „Til dæmis nefnir hann Adolfsbergsskolan í Örebro í Svíþjóð, sem sótti um námsheimsókn og hlaut styrk síðastliðið haust. „Það voru fimm kennarar þaðan sem heimsóttu tvo finnska skóla og fengu auk þess kynningu hjá Menntamálastofnun Finnlands þar sem þau gátu kynnt sér nánar lestrarverkefni sem eru í gangi á landsvísu í Finnlandi“ segir hann. „Þessar heimsóknir gáfu þeim tækifæri til að kynnast nýjum aðferðum í tungumálakennslu og hugmyndir um hvernig þau gætu unnið með lestrarkennslu í sínum skóla.“

Að lokum leggur Skúli Leifsson áherslu á mikilvægi Nordplus Junior áætlunarinnar fyrir framtíð menntunar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum og segir að það sé ekki síður mikilvægt að íslenskir skólar taki þátt í því að miðla því sem vel gengur hjá okkur til nágranna okkar.

„Áætlunin gefur skólum einstakt tækifæri til að víkka sjóndeildarhring sinn og kynnast nýjum menntaaðferðum, en ekki síður til að miðla eigin sérþekkingu. Með því að taka þátt í Nordplus Junior opnum við ekki aðeins glugga að nýjum möguleikum fyrir nemendur og kennara heldur byggjum við einnig brýr milli menningarheima. Þetta er ekki bara fjárfesting í menntun heldur einnig í framtíð samfélaga okkar.“