Nordplus – áætlun þróunar og tækifæra

Á hverju ári veitir Nordplus styrki upp á rúmlega 10 milljónir evra til fjölbreyttra menntaverkefna. Ísland hefur tekið virkan þátt í þessu samstarfi frá upphafi og hafa hátt í fimm þúsund Íslendingar fengið styrki á þeim tíma.
Nordplus er menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmið áætlunarinnar er að stuðla að samstarfi og gæðum í menntun á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum. Fjölmargir kennarar, nemendur og mennta- og fræðslustofnanir á Íslandi hafa nýtt sér styrki til að þróa og bæta starf og þekkingu, samfélaginu öllu til góða.
Ísland tók við stjórn Nordplus fyrir tæpum tveimur árum en áætlunin færist á 3-5 ára fresti milli Norðurlandanna. Það er Rannís sem sér um rekstur aðalskrifstofunnar þann tíma sem Ísland heldur um stjórnartaumana, en Rannís hefur rekið landsskrifstofu Nordplus á Íslandi frá 2013.
Fimm undiráætlanir
Nordplus felur í sér fimm undiráætlanir sem samanlagt ná yfir öll stig menntunar.
Þær eru:
- Leik-, grunn- og framhaldskólastig
- Háskólastig
- Fullorðinsfræðsla
- Horizontal, sem fer þvert áskólastig
- Sprog - tungumálahluti
Umsóknir í áætlunina skulu vera í takt við almenn markmið Nordplus ásamt því að falla vel að einni undiráætlun. Eins er lagt upp með sérstakar áherslur hverju sinni sem hafa meðal annars verið jöfn tækifæri, síðast var það stafræn færni og núna leggur Norræna ráðherranefndin áherslu á græn markmið og sjálfbærni.
Á hverju ári veitir Nordplus styrki upp á rúmlega 10 milljónir evra til fjölbreyttra menntaverkefna. Ísland hefur tekið virkan þátt í þessu samstarfi frá upphafi og hafa hátt í fimm þúsund Íslendingar fengið styrki á þeim tíma.
Nordplus býður styrki til samstarfsneta og þróunarverkefna, ferðastyrki vegna nemendaheimsókna og kennaraskipta, styrki fyrir þjálfun nema í starfsnámi og fyrir undirbúningsheimsóknir svo eitthvað sé nefnt.
Verkefni sem hlaut styrk
Verkefni sem hafa hlotið styrk úr Nordplus eru eins fjölbreytt og þau eru mörg. Eitt þeirra sem hefur hlotið viðurkenningu og eftirtekt er Atlantbib.org. Það er skólaverkefni með þátttakendum frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Íslandi, Færeyjum, Grænlandi, Lettlandi, Litháen og Suður-Slésvík sem og samísku svæðunum í Skandinavíu. Verkefnið hófst árið 2015 með stuðningi frá tungumálahluta Nordplus, Nordplus Språk.
Verkefni sem hafa hlotið styrk úr Nordplus eru eins fjölbreytt og þau eru mörg.
Verkefnið er bókaverkefni þar sem nemendur og kennarar skrifa ókeypis fagbækur til afnota í öllum skólum. Bækurnar eru rafbækur með áherslu á það sem er ólíkt og líkt á Norðurlöndunum og baltísku löndunum í sambandi við sögu, landafræði, tungumál og menningu. Nemendur taka þátt í að rannsaka, skrifa, þýða og talsetja bækurnar áður en þær eru gefnar út. Verkefnið er opið öllum, svo allir skólar geta skrifað og þýtt bækur. Endilega skoðið heimasíðu verkefnisins og jafnvel nýtið ykkur það.
Sérstakir tímar kalla á sérstakar aðgerðir
Það hefur enginn farið varhug af þeim áhrifum sem kórónuveiran hefur haft á starf í skólum, stofnunum og samfélögum almennt.
En þeir sem starfa að menntamálum þekkja það að þurfa sífellt að laga sig að hröðum samfélagsbreytingum. Stjórn Nordplus ákvað á vormánuðum að nýta mætti hluta styrkja sem þegar höfðu verið veittir til að fjármagna og kaupa fjarbúnað og annað til að halda verkefnum gangandi og auka líkur á að þau geti klárast. Þykir þetta hafa gengið vonum framar og verður væntanlega haldið áfram með slíkan stuðning á tímum óvissu. Það er stjórn Nordplus og starfsfólki mikilvægt að þátttakendur og styrkþegar finni fyrir velvilja og sveigjanleika áætlunarinnar. Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að góð verkefni geti haldið áfram.
Á næstunni
Það er jákvætt að greina frá því að við hjá Nordplus upplifum þrautseigju og jákvæðni þegar við heyrum í fólki og allflestir eru ákveðnir í að halda sínum verkefnum áfram, þó sum hver verði með aðeins breyttum áherslum og lengri tíma.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir undirbúningsstyrki í Nordplus Junior, (leik-,grunn- og framhaldsskólastig), Nordplus Voksen (fullorðinsfræðsla) og Nordplus Sprog (tungumál) og var umsóknarfrestur til 1. október 2020. Tilgangurinn með undirbúningsstyrkjum er að auðvelda leit að samstarfsaðilum fyrir þróun umsókna í Nordplus fyrir komandi umsóknarfrest sem er til 1. febrúar 2021 og einnig má nýta undirbúningsstyrkinn fyrir umsóknarfrestinn 1. febrúar 2022.
Endilega kynnið ykkur þau tækifæri sem Nordplus býður upp á. Við á landsskrifstofu Nordplus erum sömuleiðis alltaf til í samtal og að leiðbeina hverjum og einum af stað.
Höfundar eru starfsfólk Nordplus. Greinin birtist í Skólavörðunni, 1. tbl. 2020