Nokkuð um lausar orlofseignir í ágúst
Fréttir|11. ágúst 2026

Félagsfólk sem á heimangengt næstu vikur er hvatt til að skoða framboð Orlofssjóðs.
Nokkuð hefur verið um afbókanir á orlofseignum KÍ þegar líða fer á sumarið og nú er svo komið að mikið er laust síðustu tvær vikurnar í sumar.
Í flestum tilvikum eru virkir dagar lausir og henta því vart kennurum sem hafa snúið aftur til vinnu eftir sumarfrí. Hins vegar kann þetta að vera gott tækifæri fyirr félaga okkar í FKE.
Allar eignirnar er hægt að leigja í tvo daga eða fleiri, en mest í eina viku í senn.
Heyrst hefur að berin séu að verða klár fyrir norðan og sveppir gætu fundist hér og þar. Og svo er líka bara hægt að kúra með bók og njóta þess að fara í stuttar göngur.
Dæmi um lausar eignir
- Háimói 7 – 19.-27. ágúst
- Háimói 2 – 16.-21. ágúst
- Bönduós – 21.-28. ágúst
- Siglufjörður 21.-28. ágúst og
- Ásabyggð – nokkur hús 23.-28. ágúst
- Hvalfjörður Háibali- 21.-28. ágúst
- Bifröst – mikið laust eftir 16. ágúst
- Grafningur Giljatunga – 24.-.28 ágúst
- Súðavík – 21.-28. ágúst
Hér gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær.