Nokkrir styrkir Sjúkrasjóðs hækka

Úthlutunarreglur Sjúkrasjóðs KÍ taka breytingum um næstu mánaðamót. Sjúkradagpeningar, fæðingarstyrkur, styrkir vegna tannlæknakostnaðar og gleraugnakaupa eru meðal þess sem hækkar.
Uppfærðar úthlutunarreglur Sjúkrasjóðs KÍ taka gildi um næstu mánaðamót, þann 1. desember 2023.
Nokkrar breytingar verða gerða á styrkjum og má nefna að meðferðarstyrkur og fæðingarstyrkur hækka. Þá verður fjárhæð sjúkradagpeninga hækkuð úr 16.000 í 17.500 á dag.
Hámarksstyrkur vegna tannlæknakostnaðar verður einnig hækkaður og sama gildir um styrk til gleraugnakaupa og laseraðgerða á augum.
Helstu breytingar í hnotskurn
- Fjárhæð sjúkradagpeninga hækkar úr 16.000 kr. í 17.500 kr. á dag.
- Meðferðarstyrkur hækkar úr 66.000 kr. í 75.000 kr. á hverju 12 mánaða tímabili.
- Gleraugnastyrkur hækkar úr 40.000 kr. í 60.000 kr. einu sinni á hverju 12 mánaða tímabili (í stað 24 mánaða áður).
- Styrkur vegna laseraðgerða á augum og augasteinsaðgerða hækkar úr 50.000 kr. í 75.000 kr. fyrir hvort auga.
- Fæðingarstyrkur hækkar úr 215.600 kr. í 245.000 kr.
- Hámarksstyrkur vegna tannviðgerða hækkar úr 200.000 kr. í 250.000 kr.
Þá er vert að geta þess að frá og með 1. desember fellur réttur til sjúkradagpeninga ekki niður við 67 ára aldur, eins og áður var.
Félagsfólk KÍ er hvatt til að kynna sér starfsemi og regluverk Sjúkrasjóðs KÍ