NLS sendir samúðarkveðjur til Finnlands

Fréttir|3. apríl 2024

Skotárás í finnskum grunnskóla varð einu barni að aldurtila í morgun og særði tvö. Norrænu kennarasamtökin lýsa yfir harmi vegna atburðarins.

„Hugur okkar er hjá fórnarlömbunum, fjölskyldum þeirra og öllu skólasamfélaginu."

Svo hljóðar upphaf samúðarkveðju sem Norrænu kennarasamtökin (NLS) sendu frá sér fyrr í dag vegna hörmulegrar skotárásar í grunnskóla í Vantaa í Finnlandi. 

Eitt barn lést í árásinni og tvö liggja særð á sjúkrahúsi. Tólf ára drengur var handtekinn skömmu eftir árásina og var hann með skotvopnið. 

Samkvæmt fréttum er talið að einelti sé orsök þessa skelfilega verknaðar. 

„Skólinn þarf að vera öruggur staður fyrir börnin okkar, ungmenni og alla þá sem starfa í skólum," segir jafnframt í samúðarbréfi NLS. Þar segir jafnframt að leggja þurfi áherslu á forvarnarstarf og að öryggi eiga alltaf að vera í forgangi. Fjárfesting í farsæld barna sé jafnframt leið til að skapa öryggi.