NLS lýsa harðri andstöðu við áform finnskra yfirvalda
Norrænu kennarasamtökin (NLS) lýsa harðri andstöðu við áform finnskra stjórnvalda um að þrengja að samningsfrelsi launafólks og grafa þar með undan starfsskilyrðum og réttindum þess. NLS telur að með framgöngu sinni séu finnsk stjórnvöld að ganga gegn alþjóðlegum samþykktum sem tryggja félagafrelsi og kjarasamningagerð þar sem réttindi, skyldur og aðbúnaður á vinnumarkaði eru tryggð. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar miða meðal annars að því að draga úr útgjöldum vinnuveitenda með því að skerða sjúkradagpeninga, fækka orlofsdögum og lækka kaup fyrir vinnu sem unnin er í yfirvinnu og á sunnudögum.
NLS lýsir jafnframt áhyggjum af því að ef tillögur finnskra stjórnvalda nái fram að ganga þá muni það hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir finnskt samfélag og norrænan vinnumarkað. Inngrip í samningsrétt stéttarfélaga er óásættanlegt að mati NLS. Yfirlýsing kennrasamtakanna er nokkuð samhljóða ályktun Norræna verkalýðssambandsins (NFS) frá því fyrr í vikunni.
Blásið verður til mótmæla á morgun, föstudag, og er gert ráð fyrir að tugþúsundir muni leggja niður störf með þeim afleiðingum að samgöngur og ýmis þjónusta verður skert.
Norrænu kennarasamtökin (NLS) eru samstarfsvettvangur stéttarfélaga um 600 þúsund kennara á öllum skólstigum. Kennarasamband Íslands á aðild að NLS.