Níundi skólinn bætist við

Níundi skólinn, tónlistarskóli, greiðir atkvæði um tímabundnar verkfallsaðgerðir. Áformað er að verkföll í þessum níu skólum hefjist þann 29. október næstkomandi.
Nú ganga hlutirnir hratt fyrir sig. Níundi skólinn, tónlistarskóli, greiðir atkvæði um tímabundnar verkfallsaðgerðir. Atkvæðagreiðsla hófst klukkan 15:00 í gær, miðvikudaginn 9. október. Atkvæðagreiðslan stendur til klukkan 15:00, föstudaginn 11. október. Þar með taka nú atkvæðagreiðslur um verkfallsaðgerðir til allra skólagerða og skólastiga.
Áformað er að verkföll í þessum níu skólum hefjist þann 29. október næstkomandi. Verkföll verða tímabundin í grunnskólunum, framhaldsskólanum og tónlistarskólanum en ótímabundin í leikskólum. Aðgerðirnar ná til félagsmanna aðildarfélaga Kennarasambandsins sem starfa í skólunum níu og taka laun samkvæmt kjarasamningum KÍ.
Á þriðjudaginn kom fram að samninganefndir fimm aðildarfélaga KÍ hefðu ákveðið að boða til atkvæðagreiðslu um verkföll á alls átta vinnustöðum félagsfólks. Nú hefur sjötta aðildarfélagið af sjö, Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, bæst í hópinn.
Vert er að taka fram að í þeim fjórum leikskólum sem verið er að greiða atkvæði um verkfallsaðgerðir hefur félagsfólk í FSL ekki verkfallsheimild og boðar því ekki til verkfalls. Að öðru leyti vinna aðildarfélögin sjö saman í baráttunni.