Níunda þing KÍ hefst í dag

Fréttir|15. apríl 2026

Stefna Kennarasambandsins í öllum málaflokkum verður lögð á þingi sambandsins sem hefst í dag og stendur fram á föstudag.

Um 250 félagsmenn Kennarasambandsins mæta til þings á Hilton Nordica í dag, miðvikudaginn 15. apríl. Þing KÍ hefur æðsta vald í málefnum KÍ og á þinginu er ákveðið hvert skuli stefna í öllum málaflokkum næstu fjögur árin. Fjölmargar málefnanefndir munu starfa á þinginu og ræða margvíslega þætti sem snerta félagsfólk Kennarasambandsins.

Þingið verður sett klukkan tiu í dag. Þá flytja ávörp Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB og Christer Holmlund, frá Norrænu kennarasamtökunum.

Á vef KÍ er jafnframt að finna tillögur og önnur gögn sem liggja fyrir þinginu. Rækilega verður greint frá ákvörðunum þingsins, að því loknu. Félagsfólk hefur rétt á að koma sem áheyrnarfulltrúar á þingið.

Þingsetning í streymi

Sýnt verður beint frá þingsetningunni í dag. 

Hér er hlekkur á streymið

 

 

 

Midjan Poster