Níu bjóða sig fram til varaformanns KÍ

Fréttir|18. nóvember 2021

Varaformannskosningar eru fram undan hjá KÍ. Frestur til að bjóða sig fram rann út á miðnætti.

Framboð til varaformanns Kennarasambands Íslands liggja fyrir. Níu gefa kost á sér í embættið og er það metfjöldi í sögu KÍ.

 

Frambjóðendur í stafrófsröð

  • Guðjón Ragnar Jónasson, framhaldsskólakennari í Menntaskólanum í Reykjavík
  • Guðný Maja Riba, grunnskólakennari í Breiðholtsskóla
  • Hjördís B. Gestsdóttir, náms- og starfsráðgjafi í Langholtsskóla
  • Jónína Hauksdóttir, skólastjóri leikskólans Naustatjarnar
  • Kristín Björnsdóttir, grunnskólakennari í Sunnulækjarskóla
  • Lára Guðrún Agnarsdóttir, grunnskólakennari í Austurbæjarskóla
  • Silja Kristjánsdóttir, grunnskólakennari í Sjálandsskóla
  • Simon Cramer Larsen, framhaldsskólakennari í Fjölbrautaskóla Suðurnesja
  • Þórunn Sif Böðvarsdóttir, grunnskólakennari í Laugalækjarskóla.

Félagsmenn KÍ greiða atkvæði í rafrænni atkvæðagreiðslu sem fer fram dagana 6. til 13. desember næstkomandi.

Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ, sóttist ekki eftir endurkjöri. 

Nýr varaformaður tekur við embætti á VIII þingi Kennarasambandsins sem fram fer í apríl á næsta ári.