Niðurstöður stjórnarkjörs hjá FSL
Fréttir|11. mars 2014
Úrslit í rafrænni kosningu til stjórnar Félags stjórnenda leikskóla liggja fyrir en kosningu lauk í gærkvöld. Niðurstaða kosninganna er sem hér segir:
Aðalmenn
- Sigurður Sigurjónsson 136 atkvæði
- Vigdís Guðmundsdóttir 111 atkvæði
- Björg Sigurvinsdóttir 104 atkvæði
- Sigrún Hulda Jónsdóttir 102 atkvæði
Varamenn
- Halldóra Guðmundsdóttir 99 atkvæði
- Sigrún Sigurðardóttir 99 atkvæði
- Gyða Guðmundsdóttir 93 atkvæði
Halldóra og Sigrún fengu jafnmörg atkvæði og réði hlutkesti röðun þeirra í sæti. Á kjörskrá voru 463 og alls kusu 186 eða 40,17%. Auðir seðlar voru engir.
Ingibjörg Kristleifsdóttir er sjálfkjörin í embætti formanns fyrir næsta kjörtímabil. Ný stjórn FSL tekur formlega við á aðalfundi félagsins 25. apríl næstkomandi og situr fram að aðalfundi árið 2017. Í önnur trúnaðarstörf verður kosið á aðalfundinum.