Niðurstöður skoðanakönnunar um vinnumat í framhaldsskólum
Fréttir|17. október 2016
Nú liggja fyrir niðurstöður skoðanakönnunar meðal félagsmanna FF um vinnumat. Könnunin fór fram dagana 30. ágúst til 9. september sl. og svaraði samtals 791 félagsmaður könnuninni að öllu leyti eða að hluta, sem gerir 49,7% svarhlutfall. Helstu niðurstöður sýna að stór hluti þeirra sem svaraði er óánægður með vinnumatið og framkvæmd þess. Könnunin er hluti af kjarasamningsgerð félagsins, samninganefnd FF hefur fjallað um hana og mun hún koma að góðu gagni í viðræðum við samninganefnd ríkisins.