Niðurstöður í stjórnarkjöri FT liggja fyrir
Fréttir|12. mars 2026

Félagsfólk í Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum hefur valið sér stjórn fyrir næsta kjörtímabil.
Kosningu til stjórnar Félags kennara og stjórneda í tónlistarskólum (FT) lauk í hádeginu í dag.
Atkvæðagreiðslan fór fram með rafrænum hætti dagana 9. til 12. mars.
- Á kjörskrá voru 481
- Atkvæði greiddu 125 eða 26%
- Auðir seðlar voru fjórir talsins.
Atkvæði féllu með þessum hætti
Nafn
Atkvæði
Sæti
Þórarinn Stefánsson
87
1. sæti
Örlygur Benediktsson
86
2. sæti
Dagný Arnalds
85
3. sæti
Sóley Þrastardóttir
74
4. sæti
Sandra Rún Jónsdóttir
58
1. varamaður
Edda Austmann
50
2. varamaður
Ólöf Sigursveinsdóttir
44
3. varamaður
Sjö voru í framboði og því fengu allir frambjóðendu sæti í stjórn.
Ný stjórn FT tekur formlega við á aðalfundi félagsins 11. apríl næstkomandi.