Niðurstöðum úttektar um nám án aðgreiningar verður fylgt fast eftir

Niðurstöður úttektar Evrópumiðstöðvar um menntun án aðgreiningar voru kynntar í Safnahúsinu við Hverfisgötu í hádeginu í dag.
Úttektin nær til leik-, grunn-, og framhaldsskólastiga þar sem kannað var hvernig til hefur tekist við innleiðingu hugmyndafræðinnar um menntun án aðgreiningar. Þetta er í fyrsta sinn sem svo heildstæð úttekt er gerð sameiginlega fyrir þessi þrjú skólastig.
„Úttektin náði til allra hagsmunaaðila skólasamfélagsins, þ.e. til nemenda og fjölskyldna þeirra, starfsfólks skóla, skólaþjónustu og stoðþjónustu hvers konar, rekstraraðila skóla, samtaka kennara, kennaramenntunarstofnana og ráðuneyta. Markmið úttektarinnar var að styðja við ákvarðanatöku um innleiðingu og framkvæmd stefnunnar um menntun án aðgreiningar með sannreyndri þekkingu og stuðla jafnframt að víðtæku sjálfsmati innan menntakerfisins auk þess að styðja við langtímaþróun menntastefnu á Íslandi,“ segir á vef menntamálaráðuneytisins.
Samstarfsyfirlýsing var undirrituð á fundinum í henni lýsa fulltrúar Kennarasambands Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytis, velferðarráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Skólameistarafélags Íslands og Heimilis og skóla yfir vilja til áframhaldandi samstarfs við að fylgja eftir niðurstöðum úttektarinnar og markmiði hennar um að styðja við langtímaþróun menntastefnu á Íslandi.
Stýrihópur verður skipaður og efnt til málþings
Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningarmálaráðherra, sagði útgáfu skýrslunnar ánægjulega og þakkaði fulltrúum Evrópumiðstöðvarinnar fyrir þeirra framlag. „Það er ánægjulegt að sjá að samstaða er um markmið menntunar án aðgreiningar og að löggjöf okkar og stefna styðji þau. Við viljum ekki láta staðar numið við útkomu skýrslunnar heldur nota niðurstöður hennar sem vettvang og tækifæri til að halda áfram."
Kristján Þór sagðist leggja til að stofnaður yrði stýrihópur samstarfsaðila um vinnu við aðgerðaáætlun. Sú áætlun þyrfti að vera tilbúin á vordögum. Þá greindi ráðherra frá því að í byrjun júní sé áformað að halda málþing með öllum hlutaðeigandi aðilum til samtals og samráðs um hvernig best verði unnið með tillögur í úttektinni og þær tillögur sem gerðar verða í aðgerðaáætluninni, í bráð og lengd.
Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður KÍ, skrifaði undir samstarfsyfirlýsinguna fyrir hönd KÍ. „Að okkar mati er þetta mjög dýrmæt skýrsla og dýrmæt vinna sem hefur átt sér stað. Í skýrslunni felast margar áskoranir en í henni koma líka fram margt af því góða sem einkennir okkar menntakerfi," sagði Aðalheiður og bætti við að kennarasamtökin hefðu ríkan vilja til að taka þátt í vinnu stýrihóps um aðgerðaáætlun; kennarastéttin gæti lagt fram sérfræðiþekkingu og starfskrafta. Þá væri mikilvægt að koma skýrslunni út í skólasamfélagið til frekari umræðu.
Fyrir hönd Evrópumiðstöðvar um nám án aðgreiningar (European Agency for Special Needs and Inclusive Education) voru Cor J.W. Meijer, framkvæmdastjóri miðstöðvarinnar, og Per Ch. Gunnvall stjórnarformaðu á fundinum í dag. Meijer fór yfir helstu atriði skýrslunnar og sagði Ísland standa sterkt þegar kemur að löggjöf og stefnumótun um menntun án aðgreiningar. Hann hvatti til frekari umræðu hagmunaaðila um hvernig staðið verði að menntun án aðgreiningar, reglur um fjárveitingar verði skoðaðar og taka þurfi ákvörðun um hver sér lágmarksþjónusta til stuðnings stefnunni.
„Í úttektinni koma fram athyglisverðar niðurstöður, t.d. að núverandi löggjöf og stefnumótun fræðsluyfirvalda felur í sér stuðning við markmið og áherslur skólakerfis án aðgreiningar og eru í samræmi við alþjóðlega sáttmála og samninga sem Íslendingar hafa undirgengist. Samstaða er um þessi markmið og áherslur meðal þeirra sem sinna menntamálum og á öllum stigum skólakerfisins en þörf sé á skýrari leiðsögn um hvernig standa ber að því að hrinda stefnunni í framkvæmd. Af öðrum niðurstöðum má nefna að nokkuð er um að mismunandi skilningur sé lagður í hugtakið menntun án aðgreiningar. Þá kemur fram að flestir þeirra sem sinna menntamálum, á hvaða skólastigi sem þeir starfa, telja núverandi tilhögun fjárveitinga og reglur um ráðstöfun fjár hvorki taka mið af jafnræðissjónarmiðum né hugmyndum um skilvirkni og styðji ekki við skóla án aðgreiningar. Einnig talar margt starfsfólk skóla um ófullnægjandi stuðning með menntun án aðgreiningar að leiðarljósi. Auk þess efast margir starfsmenn skóla um að grunnmenntun þeirra og/eða tækifæri til faglegrar starfsþróunar nýtist sem skyldi til undirbúnings fyrir skólastarf án aðgreiningar," segir um helstu niðurstöður úttektarinnar á vef menntamálaráðuneytisins.
Samantekt: Úttekt á stefnu um menntun án aðgreiningar.
Menntun fyrir alla á Íslandi – skýrslan á ensku.
Nánari upplýsingar er að finna á síðu menntamálaráðuneytisins.