NETnótan fer í loftið á sunnudag

Alls verða þættirnir þrír, tveir hinir síðari verða sýndir næstu sunnudagskvöld.
Fyrsti þáttur NETnótunnar verður sýndur á sjónvarpsstöðinni N4 klukkan 20:30 sunnudagskvöldið 13. júní. Alls verða þættirnir þrír, tveir hinir síðari verða sýndir næstu sunnudagskvöld. Þá verður hægt að horfa á þættina í gegnum vefsíðu KÍ og á vef N4.
NÓTAN uppskeruhátíð tónlistarskólanna hefur verið árlegur viðburður frá árinu 2010. Til stóð að halda upp á tíu ára afmæli Nótunnar á síðasta ári en COVID-19 kom í veg fyrir það. Því var afráðið að breyta út af og halda upp á afmæli í formi NETnótunnar 2021.
NETnótan samanstendur af stuttum myndböndum sem hver þátttökuskóli hefur útbúið heima í héraði og svo þremur sjónvarpsþáttum þar sem N4 hefur klippt valda búta úr myndböndum skólanna.
Alls tóku um fimmtíu tónlistarskólar þátt í NETnótunni.
„Horft er til þess að NETnótan geti allt í senn þjónað sem skemmtileg og gagnleg reynsla fyrir nemendur, kynningarátak á starfsemi tónlistarskóla, þekkingarsköpun og fjárfesting í tækniinnviðum, og áhugaverð heimildaöflun um tónlistarskólakerfið á Íslandi,“ segir í kynningu um NETnótuna.
Við hvetjum alla til að horfa og njóta tónlistar alls staðar að af landinu.