Netið í boði á Flúðum og í Kjarnaskógi

Fréttir|7. janúar 2016

Félagsmenn sem dvelja í sumarhúsum KÍ á Flúðum og í Kjarnaskógi geta nú tengst netinu gegn vægu gjaldi. Þráðlausa senda er að finna í öllum húsum og eru þeir tengdir netþjónustu Vodafone. 

Þar með er samþykkt frá 6. þingi KÍ, sem fram fór árið 2014, orðin að veruleik en hún fól í sér að „leitað yrði leiða til að tryggja netaðgang í öllum eignum Orlofssjóðs“. 

Gestir þurfa að gera eftirfarandi til að ná netsambandi

  • Tengjast beininum (router) en leiðbeiningar er að finna í öllum húsunum. Hægt er að tengja allt að 32 tæki samtímis. 
  • Velja gagnamagnspakka sem gestir telja að dugi þeim á meðan á dvöl stendur. Hægt er að velja á milli pakka sem endast í þrjá, sjö eða 30 daga. 
  • Greiða fyrir gagnamagnið með debet- eða kreditkorti í gegnum greiðslugátt Valitors. 

Til upplýsingar.