Net-Nótan 2021

Einstakt tækifæri til að varpa ljósi á tónlistarskólakerfið á Íslandi í heild sinni.
Í ljósi aðstæðna verður uppskeruhátíð tónlistarskóla haldin undir formerkjum Net-Nótunnar í ár. Það var heilmikil áskorun fyrir tónlistarkennara og stjórnendur að færa tónlistarkennsluna yfir í fjarkennslu sl. vor og það er því táknrænt að bregða spegli á starfsemi tónlistarskóla með þessum hætti nú.
Stefnumið Net-Nótunnar er eftir sem áður að styrkja ungt tónlistarfólk til listsköpunar og að efla listir, menntun og menningu í samfélaginu.
Vegna COVID-19 þurfti að fresta 10 ára afmælishátíð Nótunnar sem halda átti árið 2020 en með Net-Nótunni er haldið áfram og öllum tónlistarskólum stendur til boða að taka þátt með þeim hætti að senda inn 2-4 mínútna myndband. Lokaafurð Net-Nótunnar verður í formi þriggja sjónvarpsþátta sem N4 hefur tekið að sér að gera og verða þeir sýndir í maímánuði.
Tónlistarskólar landsins eru hvattir til þátttöku enda skapast með þessu einstakt tækifæri til kynningarstarfs á tónlistarskólakerfinu og í leiðinni áhugaverð heimildaöflun.