Nemendur studdir til sjálfsnáms

Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla, segir marga sigra hafa unnist þegar skyndilega þurfti að breyta fyrirkomulagi kennslu.
„Þetta hefur verið rússíbanareið," segir Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla, þegar hann lítur um öxl og horfir til þeirra skyndilegu og óvæntu breytinga sem urðu á skólastarfi þegar kórónuveiran geisaði sem harðast hér á landi. Laugalækjarskóli er hverfisskóli fyrir 12 til 16 ára nemendur Laugarneshverfis. Nemendur eru rétt rúmlega 300 talsins.
Jón Páll er sjötti viðmælandinn í myndbandaröð sem útgáfusvið KÍ hefur gert til að safna heimildum um skólastarf á tímum COVID-19.
Áskoranirnar hafa verið margvíslegar að sögn Jóns Páls, svo sem er kemur að þrifum og sótthreinsun. „Þar höfum við þurft að vera útsjónarsöm en líka krefja fólk um umtalsverða vinnu.“
Viðvera nemenda var takmörkuð og markmiðið því að styðja þá til sjálfsnáms. „Hægt unnust bara býsna margir sigrar í því," segir Jón Páll.
Viðtal við Jón Pál er hér:
Skólastarf og COVID-19
Við mælum með myndböndunum hér að neðan; margt fróðlegt og áhugavert sem kemur þar fram.
- Aron Örn Óskarsson, deildarstjóri í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
- Gróa Sigurðardóttir, deildarstjóri í leikskólanum Hofi
- Sandra Jónasdóttir, grunnskólakennari í Hofsstaðaskóla
- Viðar Hrafn Steingrímsson, dönskukennari í Flensborg
- Ásta Kristín Svavarsdóttir, leikskólastjóri Sæborg
Á morgun verður frumsýnt myndband þar sem Helga Sigríður Þórsdóttir, konrektor Menntaskólans við Sund, segir frá.