Nemendur Oddeyrarskóla sækja í slökun

Fréttir|6. október 2015

Þuríður Lilja Rósenbergsdóttir, náms- og starfsráðgjafi við Oddeyrarskóla á Akureyri, hefur vakið athygli fyrir að gefa nemendum skólans kost á slökun eða hugleiðslu í nokkrar mínútur á skólatíma. Æ fleiri nemendur sækjast nú eftir því að komast í slíka tíma hjá Þuríði Lilju, enda slökunaröndun undirstöðuatriði í sjálfsstjórn og sjálfsuppbyggingu.

Eitt helsta markmið náms- og starfsráðgjafa er að efla viðhorf og áhuga nemenda um hæfileika sína, þannig að þeir geti notið sín sem best í námi og starfi. Nemendur Oddeyrarskóla eru tæplega tvöhundruð, þannig að skólinn telst ekki mjög stór. Þuríður Lilja hefur verið náms- og starfsráðgjafi við skólann í níu ár, fyrst í hálfu stöðugildi en síðustu þrjú árin í fullu stöðugildi. Viðbótarhlutinn hefur að miklu leyti verið nýttur í ýmsa sjálfsstyrkingarvinnu með nemendum með t.d. lesblindu og ADHD.

„Hérna í skólanum eru reglulega haldnir svokallaðir fjölgreindardagar, en þá fara allir nemendur á milli stöðva í aldursblönduðum hópum og vinna fjölbreytt verkefni sem reyna á mismunandi greindir. Fyrir sjö árum ákváðum við á einum slíkum degi að bjóða upp á slökun á einni stöðinni. Skemmst er frá því að segja að krakkarnir tóku boðinu um slökun fagnandi og þeim fannst greinilega gott að fá tækifæri til að slaka á og róa hugann.“

Flestum tekst að núllstilla sig
Þuríður Lilja ákvað í framhaldinu að bjóða nemendum sínum upp á slökun í lok viðtalstíma og nú þiggja flestir sem leita til hennar slökun þegar hefðbundinn tími hjá náms- og starfsráðgjafanum er á enda.

„Þetta er nú ósköp einfalt. Nemandinn situr í gömlum stól og ég spila rólega tónlist og leiði hann inn í slökunina. Þetta tekur í flestum tilvikum um tíu mínútur og yfirleitt gengur nemendunum vel að slaka á í stólnum hjá mér. Ég ræði mjög gjarnan við þá um gildi slökunar og oftar en ekki tekst þeim að núllstilla sig í þessum tímum. Langflestir segja mér að þeim líði betur eftir þessa tíma og þáer til mikils unnið að mínu viti.“ Þuríður Lilja segir að síðasta vetur hafi um eitthundrað nemendur leitað til sín um aðstoð og þjónustu af ýmsu tagi. „Nú er reyndar svo komið að nemendum finnst það vera eðlilegt og sjálfsagt að nota slökun til að róa hugann, án þess að þeir eigi við vandamál að stríða. Það er líka gaman að segja frá því að það er enginn kynjamunur í viðhorfi nemenda til slökunar, strákum jafnt sem stelpum líkar vel að geta slakað á. Ástæðurnar fyrir aukinni ásókn nemenda í slökun geta verið margar. Fyrir það fyrsta þurfa nemendur að hafa aðgang að svona þjónustu og vita að hún standi þeim til boða. Krakkar í dag verða fyrir miklu áreiti, og ekki bara í skólanum. Grunnskólinn er stór vinnustaður barna og unglinga þar sem reynir mikið á samskipti þeirra á milli og þar sem þeir takast daglega á við krefjandi verkefni og áskoranir. Rannsóknir sýna að regluleg slökun gerir það að verkum að viðkomandi styrkist og verður betur í stakk búinn til að takast á við daglegt amstur. Það eru til ýmisverkfæri til að róa hugann og ég hef kynnt mér ýmsar leiðir, svo sem núvitund og jóga.“

Hvaða viðbrögð færðu frá foreldrum og hvað segir þitt samstarfsfólk?

„Foreldrar eru meðvitaðir um að nemendum standi þessi þjónusta til boða og ég hef ekki fengið annað en góð viðbrögð frá þeim. Kennararnir hafa jákvætt viðhorf til þessarar þjónustu og segjast verða varir við að slökunin skili nemendum jákvæðum árangri. Krakkarnir eru að glíma við

margvísleg vandamál og hafa sannarlega áhyggjur af ýmsum málum og ég er viss um að slökun getur hjálpað þeim að takast á við hið daglega líf. Slökunaröndun er undirstöðuatriði í sjálfsstjórn og sjálfsuppbyggingu.“

 

Siðareglurnar skýrar
„Krakkar eru yfirleitt mjög opnir. Ég geng hins vegar aldrei nærri þeim varðandi persónulega hagi, en yfirleitt eru börn mjög heiðarleg og hafa ríka þörf fyrir að ræða vandamál sín á jafnréttisgrundvelli. Börn hafa alltaf haft áhyggjur, en aukinn hraði í samfélaginu, háþróuð tækni og aðgengi að mismunandi fjölmiðlun hefur sannarlega áhrif á daglegt líf allra. Hraðinn er líka orðinn mikill, sem getur auðveldlega kallað fram streitu ekki síður hjá börnum en fullorðnum. Þess vegna þurfa krakkarnir á hjálp að halda og slökun getur verið góð leið í þeim efnum. Siðareglur Félags náms- og starfsráðgjafa eru mjög skýrar. Við eigum að koma fram af heiðarleika og tillitssemi gagnvart ráðþegum og leitist við að skapa gagnkvæmt traust. Náms- og starfsráðgjafi á að gæta trúnaðar í samskiptum og þagmælsku um viðkvæmar persónuupplýsingar og sýna einkalífi virðingu. Það er mjög mikilvægt fyrir starfsstétt á borð við náms- og starfsráðgjafa að hafa ítarlegarog vel ígrundaðar siðareglur.“

Reynslan er sem sagt góð?

„Já, aðsóknin sýnir að krakkarnir hafa þörf fyrir að komast í slökun og viðbrögðin frá þeim, foreldrum og kennurum eru jákvæð. Helmingur nemenda hefur farið í slökun hjá mér og fleiri sækjast eftir því. Það er líklega besta mælingin. Þegar skólastarfið hófst á nýjan leik í haust, komu nokkrir nemendur til mín og spurðu um slökunina, hvort slíkir tímar stæðu ekki örugglega til boða áfram. Þetta á bæði við unga nemendur og þá sem eldri eru.“

Sérðu þá fyrir þér að þróa þessa tíma enn frekar?

„Kennarar á yngsta stiginu hérna í Oddeyrarskóla eru með sérstaka slökunartíma á skólatíma og ég veit um aðra skóla þar sem slökun er í boði. Í vetur verður í annað sinn boðið upp á slökun, og til viðbótar jóga, sem val á unglingastigi í Oddeyrarskóla. Ég er ekki frá því að skólar landsins horfi enn frekar til slökunartíma í framtíðinni, mér heyrist það á kennurum. Sumir krakkar velja að stunda íþróttir og fá þannig útrás og slökun, aðrir hafa einfaldlega þörf fyrir aðrar leiðir. Sem betur fer höfum við öll mismunandi þarfir og grunnskólinn á að koma til móts við alla nemendur, eins og frekast er unnt. Við leggjum mikla áherslu á það í Oddeyrarskóla.“

 

Viðtal: Karl Eskil Pálsson, karlesp@simnet.is. 


Það er mjög þægilegt að lesa Skólavörðuna í spjaldtölvu eða í síma og hægt að nálgast smáforrit í App Store og Google Play. Einnig er hægt að lesa Skólavörðuna á netinu.