Nemendur hvattir til aðgerða í ­umhverfismálum

Fréttir|17. desember 2021

Þátttaka ungs fólks í náttúruvernd er sífellt að aukast, en sænski framhaldsskólinn YBC hefur hafið samstarf við danska og norska skóla og sett á fót þriggja ára verkefni til að skapa betri framtíð.

Young Business Creatives (YBC) er opinber framhaldsskóli í Nacka, sveitarfélagi rétt fyrir utan Stokkhólm, sem býður upp á námsleiðir í frumkvöðlastarfsemi og skapandi hugsun. Framtíðarsýn skólans er „Við munum breyta heiminum“ og í tengslum við það hefur hann tekið þátt í alþjóðlegu samstarfsneti, svokölluðu Changemaker Schools síðan 2014 á vegum samtaka sem nefnast Ashoka sem styðja við frumkvöðlastarfsemi um allan heim.

„Í gegnum samstarfsnetið höfðum við verið í samskiptum við tvo framhaldsskóla, Nordahl Grieg skólann í Bergen og Örestad framhaldsskólann í Kaupmannahöfn,“ segir Oskar Sjögren, skólastjóri YBC. „Við vildum þróa samstarf með þessum skólum og ýta undir vilja ungs fólks til þess að skapa betri framtíð. Þess vegna sóttum við um styrk til Nordplus til að heimsækja skólann í Bergen.“

Grænni framtíð sem þema innan Nordplus

Umsókn skólans til Nordplus Junior fyrir undirbúningsheimsókn var samþykkt og fyrsti fundur kennara og skólastjóra skólanna þriggja var haldinn í Bergen í janúar 2020. Fundurinn leiddi til sameiginlegrar umsóknar til Nordplus Junior áætlunarinnar fyrir þriggja ára verkefni sem nefnist „Norrænir Changemaker skólar takast á við heimsmarkmiðaáskorun Sameinuðu þjóðanna“ sem var einnig samþykkt. „Það var bæði skemmtilegt og fræðandi að hittast og vinna saman á ólíkum tungumálum. Við ræddum bæði framtíðarsýn verkefnisins og hver væru raunhæf markmið þess,“ segir Ylva Broman, félagsfræði- og sænskukennari hjá YBC. Verkefnið sem YBC vinnur að fellur innan ramma Nordplus áætlunarinnar um áherslu á græna framtíð.

Einn bekkur frá hverjum skóla tekur þátt í verkefninu, en það beinir sjónum að því hvernig við getum uppfyllt þrjú af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni. Nordplus styrkurinn var að mestu eyrnamerktur ferðalögum, en þeim þurfti að fresta vegna heimsfaraldursins og því hafa nemendurnir hingað til einungis hist á stafrænan máta.

Fyrsta árið vann sænski bekkurinn sérstaklega að því að skoða hvaða leiðir væru færar til að stöðva loftslagsbreytingar. „Við vildum nýta virkni nemendanna til að blása til aðgerða,“ segir Ylva Broman. „Við höfum unnið að því hvernig hægt er að breyta eigin hegðun og lífstílsvenjum og hafa út frá því áhrif á samfélagið. Nemendurnir hafa lokið mismunandi herferðum, til dæmis búið til auglýsingar fyrir Nature and Youth Sweden og einnig fyrir verslun með notuð föt. Þau hafa líka búið til tónlistarmyndband sem vekur athygli á umhverfisspjöllum og hitt stjórnmálamenn til að fræðast um hvað sveitarfélagið þeirra er að gera til að uppfylla heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni.“

Einn bekkur frá hverjum skóla tekur þátt í verkefninu, en það beinir sjónum að því hvernig við getum uppfyllt þrjú af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni.

Nemendur ánægðir með verkefnavinnuna

Vonir standa til að bekkirnir sem taka þátt í verkefninu geti hist í Bergen í mars 2022 til að halda áfram samstarfinu og vinna saman að heimsmarkmiði tengdu hafinu og sjávarauðlindum. Í framhaldi af því verður lögð áhersla á sjálfbærni borga og samfélaga þegar bekkirnir hittast í Kaupmannahöfn. Þrátt fyrir að fyrsta árið hafi ekki farið alveg samkvæmt áætlun vegna heimsfaraldursins hefur það heppnast vel: „Það hefur farið fram úr björtustu vonum,” segir Ylva Boman. „Við höfum gert mat á verkefninu og nemendunum finnst Nordplus verkefnið vera með því skemmtilegasta sem þau hafa gert allt árið! Þau eru stolt af lokaafurðunum og þrátt fyrir stafræna umhverfið og engin ferðalög hafa þau til dæmis eignast nýja Snapchat vini. Sumt hefur þó verið erfitt, eins og að skilja tungumál hvers annars og taka þátt í stafrænum fundum.“ „Við höfum sérstaklega getað unnið með framtíðarsýnina okkar, að breyta heiminum og á sama tíma höfum við aukið skilning okkar á norrænni menningu og tungumálum,“ segir Oskar Sjögren, skólastjóri YBC. „Það er frábært að sjá hversu líkir skólarnir okkar eru og hve vel þeim gengur að vinna að sameiginlegu verkefni. Við viljum sýna fram á að skoðanir ungs fólks séu ákaflega mikilvægar og að þær geti skipt máli hér og nú.“

Höfundur er Kristina Wall hjá sænska framhaldsskólaráðinu. Þýðing fyrir Nordplus á Íslandi.

Greinin birtist í Skólavörðunni, 2. tbl. 2021.